Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Síða 40
Stjörnuspádómur fyrir 1931.
Það ár verður mikið umskiftingsár, því þá ganga öfuguggarnir í krabbamerki. Þá verður útgerð
Morgunblaðsins í Kolasundi, en Alþýðu-Avisen’s í Veltusundi. Ekki verður stingandi nástrá á Þingvöll-
um — presturinn farinn með biðlaunin, en rebbarnir komnir í staðinn — þeir, sem ekki sprungu af
hlátri, þegar þeir sáu Njálsbrennu „leikna“ 1930.
Það ár verður postulínsrækt í mestum blóma: hver strákur smalar með postulínshundum og dittó
tík — tvíhöfðuðum, og er annar hausinn danskur, en hinn íslenskur. Þá ganga postulínsstúlkur á
postulínspilsum, en þrír postulínsþingmenn sofna og detta úr sætum sínum og brotna í mjel, en hver
prumphæna landsins verpir postulínseggjum. Engin silfurskeið verður þá til í landinu, því þær hafa
allar verið bræddar í orður og krossa 1930, þá fær Guðbrandur járnkrossinn, ef hann hefir ekki feng-
ið hann þegar á stríðstímunum. Þá skýtur Óðinn á Júpíter með undarlegum kúlum — allur heimur
hlær nema íbúarnir á Júpíter, sem urðu fyrir skothríðinni og skelfingunum. Það ár verða allir veður-
spádómar rjettir, nema hvað 11 dropar falla á Akureyri, sem áttu eftir spádómnum að falla í Reykja-
vík. Á gormánuði sest hvítrauð tæfa á Austurstræti, er gera mun árás grimmilega á náttúrufar Þór-
bergs. Þá verður vart færilúsar á nautsauðum og Tímaflokknum. Um sumarið munu koma hjer til lands
777 and a ’alf Whisky-belgir til að veiða skötur og risasmokka í Þverá. Þá mun og koma þýskur rússi,
sem ekki kann greinarmun að gera á olíumálverki og vatnslitamynd, og pantar sýningu á íslenskum
listaverkum til Hensograd, og munu Islendingar senda hana og representant til kaupmannahafnar til
að láta dani velja úr og krítísera. Þeir setja fast, hvaða málarinn sje íslenskastur, en senda hina (þ. e.
myndirnar) til baka — alls 30 bílkassa fulla, þar á meðal málverk, sem voru of „storartet“ fyrir heild-
ina (ríkið borgar fragtina). Moggi þýðir dómana eftir sínum höfðum og segir: „Alt er þetta þeim eina
mentaða Jóni að þakka“.
Þá finnur Vitringurinn úr Kelduhverfinu nýtt vatn á Tvídægru, og spánnýjan hól í Vatnsdalshól-
um, og gefur því öllu nafn, sem áður var skírt. Það ár skrifa allir rithöfundar um annað en sjálfa sig.
E. B. skrifar um hringa á sjávarbotni, sem fornmenn tjóðruðu hvali við, og ennfremur um uppruna
núllsins. Þá fæðist nýtt skáld í Flóanum, sem verður heitið eftir Ganymedesi, það fæðist með orðum og
stjörnum. Sama dag fæðist í Hornafirðinum folald markað og skaflajárnað. Þá verður áveitan komin
í lag, þ. e. a. s. hin lárjetta vatnslína fundin og „dauða vatnið“ útilokað. Egill sterki losnar úr læðingi,
en spánargutli verður helt niður af svölum Alþingishússins. Þá festir einn sig á glerbroti — eins og
Hallgrímur Holtaskítur sagði forðum, en margur stórvafatemplar verður þá barinn með harðfiskum og
rifinn úr roði. Þá gleypir hvalurinn Jónas, en gubbar honum jafnskjótt aftur, sem nærri má geta, öðru
eins óæti. Tíkin gleypir óðinshanann, og þar með verður bankanum lokað. Á þessu sama ári syndir Er-
lingur frá Steinbryggjunni til Grímseyjar á 414 klukkutíma og fær að launum hjá Grímseyingum blóm-
vönd úr þara og þönglum. Þá verður staur sá, er Magnús Torfason bar inn í þingið árið 1928, reistur
upp á Lögbergi með áletruðu nafni Magnúsar ásamt pólitísku fæðingar- og dánarári. Þá eignast Titan
peninga (200 kr.), og fer helmingurinn í járnbrautarlagningu, en hinn helmingurinn í Klemens. Þá vísa
allar skífurnar á kirkjuklukkunni eins. Þá verður gengið þurrum fótum um þvera Reykjavík í ágústmánuði.
Tungl- og stjömuspekingur Spegilsins.
Anna! (Ásiarkvæði eftir ungt skáld).
Viltu’ ekki eiga mig, Anna?
Jeg elska þig hjerumbil.
Um hámessu gæti jeg hengt mig.
— Jeg held aí jeg finni til.
Ætlarðu’ a'ð giftast mjer, Anna?
Ætlarðu’ a<5 sjá a§ þjer?
(in. 11.)
Eða ætlaríu’ a§ lofast öSrum?
Ætlarðu’ a§ farga mjer?
Kæru- og kærleiksleysi
kann jeg svo illa vi§;
jeg er uppalinn austur á fjöríum
við annan og betri sið.
Ef a§ þú giftist öðrum,
þá er jeg í standi til
a§ hengja mig, hvað sem það
kostar.
— Jeg held a§ jeg finni til.
36