Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Side 42

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Side 42
Skoía-heimsóknin. Það væri synd að segja, að vinsælustu íþróttamenn vorir, sem sje knattspyrnumennirnir, nema þá helst bakverðir og markmenn þeirra, sjeu framhleypnir. — Lengi hefir það verið draumur þeirra að sýna mátt Mörlandans á Olympíuleikunum, og þótt ljúgfróðir menn og illkvittnir vilji halda því fram, að ekki hafi orðið úr því enn, sökum þess að Skuggasveinn gaf of lítið af sjer hjerna um árið, þá er oss fullkunnugt um, að sú eina sanna ástæða til heimasetu þeirra var sú, að þeir voru allmjög haldnir af kvilla þeim, er lengst hefir við þá loðað, og kallaður er á sæmilegri reykvísku sjálfskrítik. Þessi tegund krítíkurinnar hefir auðvitað náð svo langt, að þeir hafa sjeð, að þeirra eigin dómur mundi vart vera óyggjandi um þeirra eigin verðleika, og til þess að sannprófa gæði sín hafa þeir því á undanförnum ár- um gert allmikið að því að draga hingað erlenda kollega sína til þess að láta þá mala sig mjelinu smærra — bæði í einum og öðrum skilningi. En eins og þeir hafa sjeð, sem blöð vor lesa, bæði undan þessum kappleikum og eftir, er oss aldrei boðið að keppa við aðra útlendinga en þá „langbestu" frá því landinu, sem fyrir valinu verður, það árið. Oftast hafa landar vorir verið svo óheppnir að bíða Iægra hlut fyrir þessum erlendu köppum, en þó eru heiðarlegar undantekningar, eins og „rasssæris-sigurinn" frægi, er þeir unnu á „akademisk boldklub" frá danmörku anno domini 1919, enda var Ólympiu-gorgeirinn þá í algleymingi næstu mánuði á eftir. 1 ár er elsta knattspyrnufjelag vort, sem og er kent við höfuðstaðinn, eigandi að titlinum „besta knattspyrnufjelag lslands“ — og eflaust með rjettu. Kom í þess hlut að ráða fyrst á foraðið erlenda í ár, en foraðið var frá Skotlandi, og ekki all-óharðvítugt. Ekki er það ætlun vor að rekja hvert feilspark, sem látið var úti á kappleiknum, en hann var „allur hinn fjörugasti", eins og sagt er stundum í blöðum vorum. Viljum vjer viðvíkjandi smáatriðum vísa til hinna ágætu pistla nafna vors í Vísi (hvenær komumst við svo langt á menningarbrautinni, að hvert blað eignist sinn L. S.? ?), en aðeins geta þess, að markmaður vor, er þangað til hafði varið sóma vorn með sóma, varð ósáttur við samherja sinn, og fótbraut sá hinn sami hann. „Verður engum einum manni um þetta kent“, enda meiddi hinn parturinn sig líka. En slysið varð til þess, að landinn vann ekki nema með einu marki móti tveim hjá Skotunum, og þótti skítt, sem von var á, því Uruguay stóð sig enn betur í ólympíu þessa árs en Skot- ar. Stóð því nú vonin til þess flokksins, sem næstur var, en það var fjelag er kallar sig Val. Tilheyrir mannafli þess K. F. U. M., og fyndist oss eigi óviðeigandi, að fjelag, sem mennt er úr þeim herbúðum tæki sjer annað nafn og friðsamlegra, svo sem Dúfan, Auðnutittlingurinn eða eitthvað þessháttar, í staðinn fyrir að skreyta sig með nafni þessa rán-hrsefugls, sem viðurkendur er fyrir illfyglsku og dráp- girni. En auðvitað mega þeir sjálfir best kenna girndir sínar og tilhneigingar. Allur leikur þessa fje- lags var í megnasta ósamræmi við nafnið, en bar aftur á móti greinilegan vott um Kristilegt F. U. M., því hver flæktist fyrir öðrum, hvenær sem á átti að herða. Á þessum kappleik beinbrotnaði enginn svo teljandi væri, en þó komst einn landi vor svo langt, að langa einum Skotanum „einn“ á trantinn, og segja margfróðir menn, að nefndur trantur hafi svo úr greinum gengið, að eigandi hans tali síðan ekki annað en írsku, og lítt skiljanlega þó. Er þessa varla getandi, því vonandi hefir það ekki jafnmikla stórpólitíska þýðingu fyrir land vort og þjóð sem trollarasektir og -náðanir. Daginn eftir var svo Skotunum boðið til Þingvalla til að eta mat. Gerði það bæjarstjórn og fór auðvitað sjálf með; þó ekki Sigurður Jónasson, sem mun eiga í einhverju missætti við Knút og vill því ekki deila við hann salti eða þrumara. Alt í alt teiknar þessi heimsókn Skotanna til að verða til stórsóma fyrir báðar þjóðirnar, og er ekki að efa, að hún mun auka viðkynningu, skilning og vináttu milli þessara tveggja öndvegisþjóða, sem samkvæmt mælingum Guðm. próf. Hannessonar eru stærstu þjóðir Evrópu. L. S. Spegilsins. ATHS. Þegar grein þessi var rituð, var ekki lengra komið sögunni af þessum merkisviðburði, en framhald mun birtast bráðlega, ef eitthvað gerist sögulegt, hvort sem það verður slys eða annað. Vesimannaeyja-sjúss. (m. 11.) Þegar afhjúpaður var í Eyjum spítali sá, er meiriháttar maður einn gaf Eyjamönnum^ var hald- inn gleðskapur mikill, hvarí þátt tóku meðal annars stórmennis, landlæknir, ríkismúrari o, m. fl. Voru veitingar allar hinar rausnarlegustu, sem ekki er í frásögur færandi, og var seinast veittur drykkur sá er sterkastur var, en það var edikssýra. Víst er um, að sumum tók göróttur að gerast drykkurinn, en annars er eigi getið um áhrif hans á söfnuðinn, þó er vart að efa, að þau hafi verið hin ákjósanlegustu, að minsta kosti komst ekki spítalinn í brúk í þessu tilefni, sem þó annars hefði verið vel við eigandi. 38
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.