Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 43

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 43
300300,79 dagar úr lífi mínu. Mjer hefir hugkvæmst að upplýsa alheiminn með því að birta frásögur um stórmerkilegan kafla úr hinni afar fróðlegu og viðburðaríku æfi minni, og hefi jeg því skrifað afskaplega merkilega ritgerð í blað óklepptækra esperantista, sem kemur út bæði í Los Angelos og á Vatnsleysuströndinni (Jargona asocio de deliremoj, sem þýðir Jarganlegt fjelag ungra manna, skammstafað J. 0. G. T.). Ritstjórinn, sem er ættaður úr Kjósinni, tók grein minni auðvitað fegins hendi, og gaf henni þann vitnisburð, að jeg væri langbesti rithöfundur í heimi og kom það engum á óvart. Jeg birti hjer þessa eldlegu ritgerð mína í íslenskri þýðingu til þess að landar mínir fari ekki á mis við allan þann vísdóm og alheimsspeki, sem hún hefir að geyma, þótt hún vitarilega sje ekki nema svipur hjá sjón á svo mikið ófullkomnara máli en frummálinu. Jeg hefi krufið til mergjar allan vísdóm milli him- ins og jarðar, hverju nafni sem nefnist, og náð meiri fullkomnun en nokkur annar maður, í hverju sem er. Á hinum löngu andvökunóttum mínum hefi jeg velt fyrir mjer öllum ráðgátum tilverunnar, alt frá hlutabrjefum prófessors Magnúsar dócents til hinna guðdómlegu esperantórita Barbusse og Zamenhofs, að ógleymdum mínum eigin ritsmíðum, sem auðvit- að skara fram úr öllum öðrum, bæði að stíl og efnis- vali, rökfimi og sannfæringarkrafti. Jeg hefi látið hugann svífa á engilvængjum hugsjónanna um ómæl- isgeim sálar minnar. Jeg er málfræðingur, sem safna öllum orðum nema dannebrogs- og fálka-orðum. Jeg er heimspekingur og háspekingur og hefi fundið leyndustu fylgsni alheimstilverunnar í sjálfum mjer, og öðlast skýlausa þekkingu á lögum alheimsins og hjarta mitt stendur í sambandi við hið absoluta. Jeg hefi komist í tak við hina svívirðilegustu hrökkála í ríki náttúrunnar í Reykjavík. Jeg hefi farið til Lundúna og Parísarborgar og jeg hefi sjeð menn og heyrt orð. Andi minn hefir rent sjer ofan úr draumsölum himinsins niður í hlandfor veruleikans, sem vjer köllum jarðneskt líf, þar sem hann hefir staðnæmst og fundið sjer samboðið heimkynni. Og jeg umturnaðist í eldrauðan bolsa og skrifaði bæk- ur og blaðagreinar, sem rótuðu upp í sálum landa minna og umhverfðu alþjóð til rjettra skoðana, og jeg leiddi þjóð mína frá villu hennar vegar. Jeg er ágætur kennimaður. Nemendurnir hrósa mjer. Og yfir- boðarar mínir segja, að þeir hafi aldrei heyrt talað um eins góðan fræðara, og því trúi jeg líka vel og þakka þeim það ekki. En forlögin eru hverful. Hjörtu mannanna eru lamin áfram af heimsku, illgirni og þröngsýni. Svo heimskir menn eru til, að þeir kunna ekki að meta hina óviðjafnanlegu hæfileika mína. Vonum bráðar var mjer kastað af himni ágætis kennimanns, inn um kjallaraglugga villutrúar og jafn- aðarstefnu. Jeg er stórskáld. Jeg yrki lyrisk Ijóð. Þau bestu, sem til eru. Jeg syng um hina heilögu ást, um mína náttúru, um örlög mannanna, um himnaríki og helvíti, um líf og dauða, um alt hið himneska og háfleyga í djúpi sálar minnar. Jeg er fútúristi, expressionisti, surrealisti og klassiskur. — Alt þetta er jeg og miklu, miklu fleira. Jeg er óviðjafnanlegur. Jeg er mesta geni, sem uppi hefir verið. Ljóð mín ollu byltingu. Það eru hin andríkustu ljóð, sem nokkru sinni hafa heyrst. Það eru ljóð, sem enginn ann- ar hefir komist í hálfkvisti við. En jeg er líka frábær ritsnillingur. Jeg skrifaði bók, sem gjörbreytti þjóðlífi voru. Það voru heimspekilegar og guðspekilegar kenningar, æfisögur úr mínu eigin lífi, sem auð- vitað er merkilegasta líf í veröldinni, gagnrýning á trúarbrögðum vorum, árásir á þjóðina, pólitískar og guðspekilegar prjedikanir, bolsevistiskar agitationir, snildarlega samdar skáldsögur og guðdómleg ljóð og ótal fleira. Þessi bók vakti menn af svefni. Allir hrósuðu henni og hrópuðu, að höfundurinn væri hið mesta andlegt mikilmenni, sem uppi hefði verið, enda lá það í augum uppi. Sannleikurinn er sá, að jeg er mesti rithöfundurinn, sem skrifað hefir bækur eða ritgerðir. Bók þessi þaut á vængjum vindanna yf- ir allan heiminn og sneri öllum til sósíalistiskrar sannfæringar og var alstaðar keypt sem curiósitet. Hvað gerði nú kennarastjettin, forsjón uppeldismálanna, leiðtogi mentunarinnar, vörður hug- 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.