Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 47
vísu, ekki að stýra geði sínu, en hinsvegar ber öllum saman um, að minni vandi sje að stýra togara, að
minnsta kosti tappatogara. Bátsmaður: Markús bryti. Hann fór með bát í síðasta togaraverkfalli og
þótti veltakast, Sem fyrsti vjelstjóri er sjálfkjörinn bílstjórinn úr Múlasýslu, því hann hefir fínasta öku-
pappíra á landinu, sem sje frá dómsmálaráðherranum sjálfum. 2. vjelstjóri gæti verið Hjörtur þefari,
að minnsta kosti þann tíma ársins, sem bílar ganga ekki. Kyndari er sjálfsagður Hjeðinn. Bæði er það,
að hann hefir gott af að renna dálítið í hitanum, og auk þess mundi hann fá olíukyndingu í bátinn, svo
Hegri Ihaldsins fái ekki neina atvinnu í sambandi við skipið. Eiturbrasari (kokkur) gæti Jónas verið.
Um hæfileika og æfingu þarf ekki að fjölyrða. Flatningsmaður Guðmundur prófessor Thoroddsen. Hann
kann að fara með hnífinn, vil jeg vona. Netamaður Magnús Sigurðsson. Hann mun hafa haldið í annan
endann á netstubbnum, þegar laxinn var veiddur í Borgarfirðinum í sumar.
Hjer er ekki nefnt nema eitt eintak af hverju, en vandalaust ætti að verða að fá menn í þau pláss,
sem hjer eru ekki upp talin. Mætti t. d. tæma letigarðinn, sem þá verður kominn á stofn, ef forsjónin lofar
og Sigurður Heiðdal er orðinn nægilega latur.
Það þarf naumast að taka fram, að loftskeytamaður verður enginn á fleytunni, svo amma gamla
fær að deyja drottni sínum svo oft sem hún vill, meðan verið er í hafi. Þar af leiðir, að Hlíðdal þýðir
ekkert að fara að hlaupa í það að læra, hjeðan af; — hann verður ekki tekinn.
Sjálfsagt hefir flestum góðum flokksmönnum vorum verið það ánægjuefni, er dómsmálaráðherra
vor tók þá rögg á sig að losa stjórnina við „Skjaldbökuna" og aðrar húðarbykkjur íhaldsins og fá hreint
og ómengað framsóknarhrossakyn í staðinn. Það kom því nokkuð óvænt þetta atvik, er eitt af stjórnar-
hrossunum sligaðist undir Jóni Baldvinssyni á sljettum veginum upp Almannagjá. Þetta sýndist þó
mesti stólpagripur. Var það rauður færleikur, og hafði Gunnar á Selalæk keypt folaldið af Guðbrandi í
Hallgeirsey fyrir nokkrum árum ásamt móður þess, er ætluð var til útflutnings. Fjekk folaldið að fylgja
mömmu sinni á leið til skips og var í þeirri ferð lokað inni 18 sólarhringa á Kolviðarhól. Síðan hefir
hryssan gengið úti jafnt vetur sem sumar í Selalækjarmýrum, þar til síðastliðið haust, að Gunnar seldi
stjórnarráðinu hana fyrir sanngjarnt verð.
Má af þessu ofanritaða sjá, að það hefir ekki verið þróttleysi merarinnar, sem olli þessu atviki,
þar sem bæði kyn og uppeldi var svona gott, heldur hefir orsökin verið einhver önnur. Er því sennilegt,
að merin, sem er vitskepna hin mesta, eins og alt er þaðan kemur að austan, hafi tileinkað sjer hugar-
far fóstra síns og ekki álitið það nægilegt að standaeða ganga undir Bolsunum, heldur bæri sjer beinlín-
is að liggja undir þeim; m. ö. o. líklegast að merin hafi lagst af einskærri auðmýkt og lotningu.
Pegar Framsóknarmerin sligaðisí undir Jóni Baldvinssyni. (m. i8.)
43