Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 55

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 55
aðra asna, aðra sauði, önnur naut) fulla með vissum skilyrðum, undir vissum kringumstæðum og með vissum takmörkunum, án þess að þurfa að spyrja dani. 1. Þetta hlýtur að eiga við íslendinga á Islandi og í danmörku og dani í báðum löndum og á báðum áttum og báðum buxunum. _ . a. Þó að ekki sje getið um það í sambandslögunum, að danir sjeu fullvalda, þá verður þó líklega samkvæmt jafnrjettisákvæðunum að líta svo á, sem þeir hafi eftir atvikum nokkurskonar fungerandi fullveldi, og sýnir þetta eitt með öðru, hve háskalegt jafnrjettisákvæðið er. b. Þetta fullveldi þeirra hlýtur per analogiam að ná bæði til þess að vera sjálfir fullir og til þess að hella Islendinga fulla, bæði á íslandi og í danmörku. 2. Þetta sætir þó svipuðum undantekningum og þeim, sem nefndar eru í II, 1—3. 3. Mikið hefir verið deilt um það, að hve miklu leyti þetta getur átt við um hjólhesta, og skal því at- hugað nánar þetta vísindaiega vandamál. Hjólhestar eru ekki fullvalda að mínu áliti, því að: a. Þá vantar þá líkamsbyggingu, sem nauðsynleg er til fullveldis. b. Hætt er við að þeir lækju hverjum dropa, þó reynt væri að hella einhverju inn í holu pípurnar. a. Einstaka vísindamenn líta svo á, að hjólhestar verði fullvalda, ef helt er í gúmmíhringana, en jeg þekki ekki þá lögspeki. b. Jafnvel þó að hringirnir væru heltir fullir, verður ekki sagt, að hjólhesturinn verði júrid- iskt sjeð „fullur" af því, heldur í hæsta lagi „hálfur“, og yrði því hjer í hæsta lagi um hálf- veldi að ræða, en aldrei neitt fullveldi. 4. Sama verður að gilda um aðra, sem líkt er á komið fyrir, svo sem leikfimishesta, kúbein (sem auk þess er ekki nema partur af skepnu), járnkarla, vatnshrúta, vatns- og lofthana (aftur á móti hafa Lofthænur fullveldi), stól- og rokkbrúður o. s. frv. IV. Þegar sjerstaklega er rætt um íullveldi íslands, verður auðvitað að hafa það sjerstaklega í huga, að það gildir ekki nema um Island. Reyndar má efast um, hvort nokkurt annað ríki í heimi er fullvalda, svo að sannað verði. T. d. munu Englendingar vera í miklum vafa um það, hvort þeir eru fullvalda, og jeg minnist ekki að hafa sjeð það nokkursstaðar á prenti, að talað sje um „hið fullvalda ríki, Eng- land“, eins og maður sjer hjer svo iðulega, og mun þetta stafa af því, að Englendingar þora ekki að vekja upp umræður um málið, eða af hverju öðru ætti það að stafa? Sama er að segja um Þýska- land og Frakkland. Aftur á móti kemur þetta fyrir í bókmentum Lichtensteins (sbr. Jón Dúazon: Von der Stjórnverfassung des vollmáchtigen Grúnland in Verbindung mit Lichtenstein betrachtet VL, 3456). Af þessu leiðir, að þó að t. d. danir gleyptu England og það glataði þannig ímynduðu eða virkilegu fullveldi sínu, þá snerti það ekki ísland. Þetta sjálfstæði íslands leiðir af því: 1. Að ísland er annað en England (sjá landkort Mortens Hansens) eins og nöfnin sanna. 2. Að Islendingar er annað en Englendingar eins og sannast af því, að þeir tala annað mál. Má svo heita, að það sje ómögulegt eða að minsta kosti illmögulegt, að skilja Englendinga nema með miklum lærdómi, í stað þess að hvert barn skilur strax íslensku (ekki náttúrlega strax og það fæðist, en næstum því) og alveg án lærdóms. V. Gæta þarf vandlega að því, að misbrúka ekki fullveldið. Misbrúkun á fullveldinu verður að teljast: 1. Ef menn eru altaf að nota það (of hár frekvens). 2. Ef menn nota það illa: a. Ef menn sitja of lengi við. b. Ef menn fara of hart í það. 3. Misbrúkun á fullveldinu verður að telja það, að vilja alls ekki nota það, eins og er stefna góð- musterisriddara (good-templara). Þetta verður að telja með öllu rangt, að öll brúkun fullveld- isins sje misbrúkun. a. Því að til hvers væri það þá, má jeg spyrja? b. Fullveldið er hnoss (sbr. Stúdentablaðið). c. Fullveldi, þar sem ekki nokkur maður væri nokkursstaðar eða nokkurntíma fullur, væri bara veldi, en ekkert fullveIdi, en nú er það einmitt fullveldi. < Fleira ætla jeg svo ekki að skrifa að sinni. Alt þetta er miklu nánar tekið fram í bók minni, sem jeg er nú að skrifa: Die Vollmacht Islandes, eine slibrige Frage der Rechtswissenschaft, sem jeg ætla að senda Oslóháskóla til þess að verða doktor fyrir. En jeg vona samt, að þeim, sem lesa grein þessa þrisvar til fjórum sinnum, sem jeg trúi alls ekki að mönnum geti leiðst, verði æði mikið ljósara, hvað felst í þessu mikla og fyrir þjóð vora eftir atvikum örlagaþrungna orði Fullveldi. Ríkisrjettarfræðingur Spegilsins 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.