Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 57

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Page 57
Jarðskjálffar. m. „Elstu menn muna ekki annað eins“, segja menn, þegar eitthvað ber við, sem þeim þykir sjald- gæft og óeðlilegt, svo sem ef einn af hinum alkunnu „Reykjaneskippum“ kemur í einhvern pólitíkus- inn, eða menn verða fyrir nokkurnveginn liðlegri afgreiðslu í einhverri ríkisstofnun, eða ef önnur Slík stórmerki gerast á Iandi eða sjó. Til dæmis má nefna, að elstu menn muna hreint ekki, að Ahrenberg hafi verið eins lengi til Grænlands og í ár, heldur ekki, að nafni hans, Bergur bílstjóri, hafi talað eins vel við ráðherra og í ár, og heldur ekki. að jafn geigvænlegur jarðskjálfti hafi komið sem í ár. Síðast- nefnda bendir á, að menn sjeu skammlífir hier á Iandi, og það svo mjög, að elstu menn hafi ekki verið orðnir sjáandi árið 1912 auk heldur árið 1896. Þegar jarðskjálftinn kom, var farið að eins og plagar að vera, ef dularfull fyrirbrigði gerast, að blaðamenn voru sendir vestur á Elliheimili til að hafa tal af elstu mönnum, því þar mun þá helst að finna, en svo bölvanlega vildi til, að elstu menn höfðu ekki aðeins tapað þessum venjulegu fimm skilningarvitum, heldur líka minninu, og fer maður þá að skilja betur, hvers vegna það ber svo oft við, að ..elstu menn muni ekki annað eins“. Heldur ekki muna elstu menn eftir því að hafa sjeð fólk hlaunandi út úr baðhúsinu í þeim einum fötum, sem skaparinn hafði þeim gefið, en skraddarar engan þátt í átt, álíka fjölklætt og sundmenn Morgunblaðsins, sem þreyttu kapnsund í öxará og hneyksluðu með bví nokkra basar-smælingja. Sá atburður mun vera sök í því, að öxarárfoss er ekki lengur til, því eftir að þetta ódæði skeði var ánni veitt lir farvegi sínum, ein- hversstaðar fyrir ofan gjá, svo hennar verður ekki vart á Alþingisstaðnum. Dapskur blaðamaður, hr. Sinke Lögnstrup, var hjer staddur þennan dag, sem jarðskjálftinn fór fram. Hafði hann staðið hjer við þann dag og var nú að Ijúka við að kynnast landi og þjóð. Allir vita, að bað er fljótgert fyrir útlendinga, er hingað koma. Síðasta menningaratriðið, sem hr. Lögnstrup kynnti sjer, var það hvernig Fálkakross væri hengdur á V. Hersi. Var hann því í ýmsum sundurleitum þönkum að þeirri athöfn lokinni, en alt í einu veit hann ekki fyrr en hann fær heilan bunka af allskon- ar leirtaui í skallann. Hafði hann margt hevrt um íslenska gestrisni. og fann hjer enn ábreifanleg- an vott hennar. Samtímis fann hann til ákafs titrings í ganglimum öllum og þótti sem iörðin gengi í charlestontakt undir fótum sier. Hr. Lögnstrun er alls-ókunnugur jarðskjálftum, því ferðamannafje- lagið, sem veitti honum forstöðu, var enn ekki búið að arrangera neinum fyrir hann. Gekk hann því áfram nokkur skref og fram hjá rakarastofu einni. En er hann kom þar fvrir dyrnar kemur bar í hann maður, eins og tappi úr ósvikinni kampavínsflösku eða Iandlæknir úr fallbyssukjafti og hafði nær velt honum um koll. Þótti blaðamanninum skítt, að gerðar skyldu tilraunir til að kollvarpa dönum á Jslandi og hje'lt, að þetta væri einhver af forráðamönnum blaðsins ÍSLAND, en svo reyndist þó eigi. Maðurinn var sáougur upp í hársrætur og stóð hnífur í hálsi hans. Nú fór hr. Lövnstrup fyrst að skilja málið, því sjálfur hafði hann byriað feril sinn sem rakari og þá oft mist viðskiftavini og hnífa á bennan hátt. Þegar fleiri hnífar voru ekki til, sigldi hann og fór þá eins og öðrum rökurum, sem sigla, að hann gerð- ist hrmdelsmand, en þótti skrifa svo liðugt reikninga á kúnnanna, að hann gerðist eftir það blaðamað- ur. Áfram var ferðinni haldið og var hann þá svo heppinn, að rekast á einn landa sinn, sem hann hafði kynnst um leið og landi og þjóð. Var að vísu sá Ijóður á ráði hans, að hann kunni hvorki dönsku nje íslensku, en gat þó gert landa sínum skiljanlegt, að þetta væri kallað jordskælv. Hjer var heldur en ekki matur á borðum fyrir blaðamanninn og fylgist hann með landa sínum eftir Austurstræti til að horfa á aðfarirnar. Þar er jafn margt manna á ferli og 17. júní eða þegar flugmenn eru dregnir í höfn. Mátti þar líta menn höfuðfatalausa, en aðallega vitlausa, er stóðu og biðu eftir því, að húsveggirnir hryndu yfir sig líkt og júðarnir forðum, er báðu hálsana að gera eitthvað líkt (sennilega flöskuhálsa, sbr. sálminn: „Frá Jerúsalem þeir senda | syni Leví þjettkennda | með höfuðprestanna her“). Þýddi þar ekkert að stjórna neinni trafík, því bæði hús, menn og bílar vingsuðust til. Var í snatri kosin nefnd til að athuga jarðskjálftamælana og kom það fljótt í ljós, að þeir voru í slíku ólagi, að elstu menn mundu ekki annað eins, og er þá töluvert sagt. Aftur á móti var símað frá Englandi, að jarðskjálfta- miðstöðin væri uppi í Borgarfirði. I sambandi við atburði þessa, skít jeg því til lesenda Spegilsins, hvort enginn hafi fundið tann- gerfi mitt, er mjer varð á að týna þennan dag. Var það hið vandaðasta og hafði kostað 700 kr. hjá Halli (útdráttur meðtalinn). Hafi einhver verið svo lánsamur að rekast á það heilt eða brotið, geri hann eða hún svo vel að leggja inn á skrifstofu þessa blaðs tilboð merkt „Bitvargur“ eða þessa undir- skrift ' „Jarðskjálftamælir Spegilsins“. 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.