Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Side 66

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Side 66
Hvar er Guðbrandur? „v,., Ekki alls fyrir löngu mátti heita, að þjóðarsorg væri um gjörvalt ísland, og meir að segja um Spán líka, er það frjettist, að Guðbrandur sá, er blendnastur þykir á Spanjólann, væri týndur á leiðinni frá íslandi til Spánar, og var ýmsum getum leitt að þessu hvarfi eins nýtasta manns þjóðarinnar, svo sem það, að hann hefði fengið mikilmennskuæði og kastað sjer út úr flugvjel yfir Ermarsundi, til þess að líkjast Löwenstein hinum belgiska, o. s. frv. Þó magnaðist þjóðarsorgin um 300 %, er það heyrð- ist, að sami Brandur væri aftur fundinn, og er það ekki nema eðlilegt. Hvarfið komst þannig á almenn- ingsvitorð, að ískyggileg skeyti tóku að berast hingað sunnan af Pyrenneaskaganum, frá Spánarlegáta Spegilsins, og var honum auðvitað svarað í sömu mynt, nfl.: „Hvar er Guðbrandur ?“ Menn skyldu nú ekki trúa, að það væri neitt sjerlegt lífsspursmál, hvar Guðbrandur væri hálfum mánuði lengur eða skemur, en hjer stóð svo á, að Spanjólinn var tekinn að súrna þarna suður frá, og þurfti því að komast á markaðinn, en hjer heima var uxahöfuðið þjóðfræga gjörtómt að Tíkarbrandi og ekkert fyrirliggj- andi til Hvítasunnunnar, og hefir slíkt ekki fyrr skeð í elstu manna minnum, en hins vegar er Tíkar- brandurinn falsaður, ef hinn Brandurinn blandar hann ekki sjálfur, en fölsuð vín má ekki selja í ríkis- stofnuninni, svo sem allir vita. Var því ekki annað að gera en senda hjálparleiðangur, eins og eftir Nobile forðum, og var til fararinnar ráðinn þefari Spegilsins, sem um þær mundir hafði lítið að gera. Fór hann eins og fætur toguðu til Englands og gegnumþefaði þar bæði Buckingham Palace og Scot- land Yard, en alt kom fyrir ekki, og vita þeir þó jafnlangt nefi sínu í Scotland Yard, en kváð- ust ekki taka að sjer neinskonar sóðamál fyrir íslendinga framar. Tók þá snússar- inn flugvjel og fór, eins og leið lá, til Parísar. Hittir þar helstu menn að máli, svo sem Doumergue, Odd Ferhyrnda, og fleiri gentlemenn. Þeir ráða honum til að leita á stöðum þeim, þar er mannfagnað- ur sje, en í bæ eins og París er það ekki gert á einum degi. Byrjaði hann á Montmartre, en leist svo svakalega á lýð þann, er þar var saman kominn, að hann þóttist þess viss, að ekki hefði Brandur það- an farið lifandi, en dauðan kærði hann sig ekki um að finna hann. Var þá leitað í öðrum bæjarhlutum, svo sem á Montparnasse; er þar meðal annars öldurhús eitt, er La Cicogne nefnist. Stóð þar fyrir dyr- um úti negri einn, ekki ó-svaðalegur, og hefðu þefaranum fallist hendur, ef negrinn hefði ekki haft Etoile Noire í hnappagatinu, og kvaðst vera seinasti maðurinn, sem þá orðu fjekk, áður en farið var að brúka hana á hvíta menn. Finnur þefarinn þar Guðbrand, með tilstyrk niggarans, og fleygir honum, og sjálfum sjer á eftir, upp í lest, er fara átti til Spánar. Var hann þar afhentur Spánarlegáta vorum og Fonsa konungi til frekari fyrirgreiðslu, og kváðust þeir ætla að láta hann taka þátt í nautvígum þar í landi, meðan verið er að útskipa Spanjóla þeim, er hann vonandi kemur með heim úr för sinni, er teiknar til að vera öll hin frækilegasta. Látum vjer oss vel líka þá ráðstöfun og vonum af heilum hug, að Brandi takist að drepa toreador þann, er sendur verður á móti honum. inni stóð og ekki var það hans sök, þó „Stormur" kæmi ekki á rjettum tíma. Vjer álítum íhaldið full sæmt af honum, enda hefir hann einurð og djörfung öðrum fremur. — Aumingja Framsóknarfrúin, sem alt í einu snjeri huga sínum frá því háleita og beindi hon- um að því hverfula nokkra daga fyrir bæjarstjórnarkosninguna, ætti sannarlega að fá einhverja umbun fyrir ómak sitt. Að vísu gerði hún Framsókn frekar ógagn en gagn á þeim tíma, en það þarf að virða viljann fyrir verkið, og verður það ekki með öðru betur launað en að skipa hana í þennan virðulega sess. Allir hljóta að skilja það, að ekki verður hjá því komist að í dómnum sitji að minsta kosti einn mjög alvarlegur maður (seriös) og þá verður Sigurður Jónasson sjálfkjörinn. Hann verður full- trúi Alþýðuflokksins í dómnum. Svo er til ætlast í fimtardómsfrumvarpinu, að þessir þrír aðaldómendur geti tekið tvo sjer til aðstoðar, ef þeim þykir þurfa, og vitanlega gæti það ekki annars heitið fimtardómur. Og það verða að vera framúrskarandi lagamenn, vegna þess, að ef þessir þrír kynnu lögin, þá þyrftu þeir að sjálfsögðu ekki á neinni hjálp að halda. Hjer er nú úr mörgu góðu að velja, því Reykjavík er rík af lagamönnum, en eftir ítarlega og nákvæma íhugun höfum vjer komist að þeirri niðurstöðu, að öruggast myndi að taka þá, lögmanninn og Pjetur Jakobsson. Vjer væntum, að þessi fimtardómsskipun vor nái samþykki og samúð alþjóðar. 62
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.