Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Síða 127
Torg bæjarins.
Þökk og heiður sje Mogga kollega fyrir að hafa tekið steininn úr stíflugarðinum og ritað hina
þörfu hugvekju sína, á sunnudaginn var, um torgleysi það, er oss höfuðstaðarbúa ætlar hreint lifandi að
drepa. Munum vjer hjer eftir, af besta megni, leitast við að halda málinu vakandi og víkka nokkuð til-
lögur kollega vors, því sannast að segja voru þær nokkuð óákveðnar og fáar.
Þá liggur beinast við að byrja á miðpunkti vallarins, hvar Jón heitinn Forseti trónar. Best er að
taka það strax fram, að vjer viljum ekki láta flytja hann burt, því full ástæða er til að halda, að hann
kunni vel við sig, horfandi allan þingtímann í rumpinn á þeim, sem situr í forsetastól Alþingis. En
annað mál er, að sjálfsagt er að gera eitthvað við undirstöðuna undir Jóni, sem kostaði 10000 krónur
(undirstaðan), og mætti fyrir álíka summu í viðbót gera úr henni frægasta bensíngeymi, sem myndi
margborga sig á skömmum tíma, því það ætti að vera þjóðernismetnaður allra sannra íslendinga, ekki
síður en að setja Eimskipafjelagið á hausinn, að kaupa eingöngu Forsetabensín, hvort sem það nú er
til að ná af sjer mannorðsblettum eða að brenna í bíl. Atvinnumálaráðherra ætti sjálfur að tappa ben-
sínið og taka við aurunum, sem svo rynni í Búnaðarbankann og þaðan til bænda, hver eyrir, ef þeir
þá hafa nokkuð við aura að gera, þegar alt flýtur í 30-ára skuldabrjefum ríkissjóðs.
Þar eð Knútur mun hafa nú orðið lítið að gera. gæti hann staðið uppi í húsi því við völlinn, er Jón
Þorláksson bygði ólöglega út í Vallarstræti fyrir nokkrum árum, og stjórna þaðan trafíkinni, ekki þó
með handapati, heldur með ljósmerkjum, sem framleidd eru með billegu rafmagni frá Sigurði fyrv.
borgarstjóra Jónassyni. Þó verður þetta líklega aðeins bílaumferðin, sem Knútur kemur til að hafa á
samviskunni, því fyrir framan símastöðina verður að hafa sjerstakan mann til að stjórna umferð hinn
5.—20. hvers mánaðar, þegar símagjaldendurnir koma, æstir í að borga, og storma stöðina. Maður þessi
verður að vera handsterkur, eins og t. d. Hlíðdal, o.g væri líklega best að skikka hann til þess arna, þar
sem nú munu engar símastúlkur vera til að fleygja út, fyrir að segja „einmitt það“. Þó gildir þetta að-
eins þann tíma ársins, sem Hlíðdal þarf ekki að vera á símakongressum á Spáni, svo líklega veitir ekki
af heilum manni til vara og nokkrum aukalega til varavara. En á svölum hússins stendur útvarpsstjór-
inn og syngur Haustkvöld eftir sjálfan sig með undirspili Hjörvars. Má stinga því að stjóranum, ef
hann veit það ekki, að ágætt er að taka af sjer flibbann til þess að röddin njóti sín betur, en það verð-
ur hún að gera, svo að atvinnumálaráðherrann vfirgnæfi hann ekki, þsgar hann fer að æpa Forsetaben-
sínið, svo sem áður er sagt, því ekkert þýðir útvarpsstjóranum að spýta upp í hann — hann þegir ekki
fyrir það.
í Alþingishúsið þarf að leggja sem fyrst pípuleiðslu ú.r „Ríkinu“, því við það sparast allir þing-
sveinarnir í kreppunni. En svo þyrfti að setja upp ræðustól, rjett þar hjá, sem Guðmundur úr Grinda-
víkinni situr, og koma fyrir einhverju góðu flágjallarhorni í gluggann, til þess að borgararnir þurfi
ekki að ómaka sig inn í húsið. Getur leitt af því margskonar sparnaður, sem engum dettur í hug í
fljótu bragði.
Ræðustóll sá, er Moggi stingur upp á, ætti eiginlega að vera uppi á bensíngeyminum áðurnefnda.
Nú þarf ekki á ræðustól að halda nema örfáa daga ársins, og mætti þá aðra daga hafa þar blaðasölu
og jafnvel sprúttsölu, því það er óneitanlega þægilegra að ganga að því þar, heldur en að þurfa að
kosta svo eða svo miklu upp á bílferðir. Yrði þessi staður mjög sóttur allan þann tíma, sem lokað er
á Borginni. En fyrir framan Borgina sjálfa ætti að setja upp Bar og hafa hasardvjelina, sem nú er
þar í dyrunum, í miðjunni. Myndi þá að minsta kosti skána andrúmsloftið í dyrunum. Þá ætti og að
dreifa varalögreglumönnum víðsvegar um völlinn, þ. e. a. s. torgið, og hlyti það að verða mikil umskifti
fyrir þá að sjá einhverntíma dagsljósið, og eins fyrir borgarbúa að sjá þetta fríða lið í björtu. Yrði það
ef til vill til þess, að það yrði ekki langlíft í landinu, en því fylgir sparnaður mikill, jafnvel þó einhver
útfararkostnaður hlytist af.
1 þetta sinn verður ekki gert nema stika á því stærsta, en jafnan er rúm í dálkum vorum fyrir
viturlegar tillögur í þessu máli, sem að merkilegheitum gengur næst skuldamálum bænda og jarðasölu
þeirra til ríkisins.
123