Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Side 129

Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Side 129
Annálsbrot. Ánð 1933. {V,„. 23 24, Árið hófst með bjargleysum og óráðsíu til lands og sjávar, og hjelst það til ársloka. Umhleyp- ingar miklir í stjórn og tíðarfari. Þar með fylgdu óvenju miklir óþurkar, þrátt fyrir veðurfræðinga ríkisins með huggunarríka spádóma á þrem tungumálum. Höfðu veðurfregnir þessar meira að segja nærri grandað mannslífi, því hreppstjóri einn í Skaftafellssýslu hafði hlustað á erlenda spádóminn í stað þess innlenda og lenti fyrir það sama í vonskuveðri, og var nærri orðinn úti, enda hafði tungumála- kensla fallið niður hjá útvarpinu. Verður þessum tilraunum veðurstofunnar væntanlega haldið áfram, ef útrýma þarf hreppstjórum. Það var upphaf þessa eymdarárs, að Jón Þorláksson var kjörinn borgar- stjóri í Reykjavík, og eftirmaður Knúts hins helga, danaástar. Gjörðist þá róstusamt og viðsjár miklar í hjeröðum, einnig utan Reykjavíkur, og mátti heita, að höfðingjar hefði sífelt flokka uppi til að lumbra á almúganum — var hinn fjölmennasti og illskiftnasti í höfuðborginni, og kallaður varalögregla. Hung- ur gerðist svo mikið, að á sjálfu Alþingi kom fram tillaga um söngfugladráp, fólkinu til bjargar, en náði ekki fram að ganga, og varð því landsmönnum nauðugur einn kostur að drepa söngfugla í leyfis- leysi, eins og áður hafði gert verið. Má nokkuð marka hungursneyðina af því, að víðsvegar um land lögðu menn sjer til munns hvalfeiti og barnalýsi. Var agaleysi og hungursneyð um land alt, nema hjá þeim, sem voru á ríkinu, utan launalaga, og hrundu bændur eins og hráviði á Kreppulánasjóð og Lög- birtingablaðið, en það blað stóð eitt blaða með verulegum blóma á árinu. Brugg var mikið um land alt, enda þótt valdsmenn færi um landið herskildi. Tóku þeir hús á mönnum og röskuðu grafarró framlið- inna húsdýra. Þá var veginn Höskuldur, eftir langa og fræga vörn, og ljettur fundinn. Þá sáust reykj- armekkir norður af Hofmannaflöt að sjá, og meintu menn eldgos vera. En það reyndust vera skálkar nokkrir, er innrjettað höfðu brugghús í hól einum, því húsnæðisekla var mikil í höfuðstaðnum. Síðla árs teygði rjettvísin jafnvel armleggi sína norður í Ódáðahraun, nærri Trölladyngju, því þar höfðu og eldar sjest og reykjarstólpar. Var stjörnufræðingur sendur á vettvang til að úrskurða, hve margra stjarna brugg útilegumenn hefðu þar með höndum, en kom eftir mikla hrakninga til bygða og var lítt haldinn, og engan árangur bar för þessi. Á þessu ári hjelt Sæmundur prestur hinn fróði hátíðlegt 800 ára afmæli sitt. Voru fánar dregn- ir að hún og minningarrit útgefið, en það var jafnframt í tilefni af þriggja ára afmæli Fornritaútgáf- unnar, og var þetta fyrsta bók hennar eftir miklar þrautir. Ber mönnum saman um, að það sje besta bók Sigurðar Nordals á þessu ári. Á árinu reisti Sigurður Jónasson pílagrímsferð til Chicagoborgar. Þóttu þetta tíðindi mikil þar í borg. Gekk hann að leiði fallna hermannsins, A1 Capone, og lagði á það sveig úr vínviði og tóbaksjurtum, en bandíttar borgarinnar höfðu tveggja mínútna vinnustöðvun á með- an og tóku ofan gasgrímur sínar. Var ræðu Sigurðar við þetta tækifæri útvarpað, en skildist ekki sök- um klökkva. Tók Sigurður þátt í 7 daga námsskeiði í borgarstjórn og tók minna prófið (smáborgar- stjórapróf). Bar öllum saman um að efnilegri maður hefði þar ekki komið, síðan A1 Capone dró sig til baka til sveitasælunnar. Eftir þessa för hækkuðu vindlar Tóbakseinkasölunnar um 5 aura grossið, en Sigurður um 5 þumlunga í áliti góðra manna. Þá gerðust fleiri tíðindi furðuleg. Þýskt herskip skaut á forsætisráðherra 17 skotum, er hann ætlaði að ráða til uppgöngu, en öll klikkuðu, konsúlabrennivín hafði runnið í púðrið og bleytt það. Rafmagnsstraumur hljóp í kú og bensíntunna sprakk við bústað sendiherra dana. Var hið fyrra kent þjóð- hnöggvingum, en hið síðara þjóðernissinn- um. Þá var almenn- ur kvennafundur um „mesta nauðsynja- mál kvenna“, en ó- kunnugt er, hvort úr því hefir tekist að greiða. Þá gerðust blaðasalar svo uppi- vöðslusamir, að þeir gengu grenjandi um 125
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Rauðka : úrval úr Speglinum

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rauðka : úrval úr Speglinum
https://timarit.is/publication/1625

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.