Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Síða 134
V olufo. (IX. 12.)
Um miðjan dag, hinn 14. þ.
m., sáu vegfarendur, sem leið
áttu um Austurstræti, þá Kaa-
ber bankastjóra og P. Stefáns-
son heildsala berjast fyrir utan
dyr Landsbankans af miklum
móði, og endaði bardaginn með
því, að Kaaber átti fótum fjör
að launa og forðaði sjer inn í
stofnunina. — Skynugir menn
gátu þegar getið sjer til um, að
hjer væri verið að afgera eitt-
hvert valútuspursmál, því slíkt
1 hefir fyrr skeð, að þau hafi ver-
ið útkljáð á grundvelli hins
frumstæða hnefarjettar, þegar
alt annað brást. Kunnugir hafa
getið þess til, að heildsalinn
muni hafa fengið eitthvað lík
svör og annar kúnni, sem
nokkru áður kom til banka-
stjórans og bað um nokkur
pund, sem sje: „Farið þjer til
helvítis; þar eru nóg pund“. —
Er svar þetta tekið hjer upp, ef
ske kynni, að valútaþurfendum
hafi ekki sjálfum dottið í hug,
að Kaaber grafi pund sitt svo
djúpt.
Gjaldeyrisnefnd
Spegilsins.
vík, en sá hængur var á, að slökkvilið borgarinnar má ekki fara út af bæjarlóðinni nema með leyfi
borgarstjóra, rjett eins og kóngurinn í Englandi má ekki koma inn í City of London nema með leyfi
lordmerinnar. Nú stóð svo á, að þegar hjálparbeiðnin barst til Reykjavíkur, var ekki viðtalstími hjá
Jóni borgarstjóra og hann ekki við, en Tómas stóð þarna allur af vilja gerður, en valdalaus til að senda
slökkviliðið af stað. Leið nokkur tími þangað til náðist í Jón og seinkaði hjálpinni svo við þetta um-
stang alt, að eldurinn hafði unnið sitt verk, þegar slökkviliðið kom á vettvang. Opnast þvíhjer nýr
markaður fyrir Hvanneyrarheyin, og ný sönnun er fengin fyrir því, að svo mikill nytsemdarmaður er
Jón, að hann getur orðið að liði, bæði nær- og fjærstaddur.
Vjer hyggjum, að með þessu atviki sje fordæmið gefið til að fara eftir framvegis. Ekkert annað
en brenna heyin á einhverju þjóðarbúinu, og flytja svo þangað hey úr nægtabúri Hvanneyrar. — Hefði
Columbus verið uppi, hefði hann líklega stungið upp á því að brenna bara sjálf Hvanneyrarheyin, því
óneitanlega myndi það spara kostnað og alt amstur við flutningana.
130