Rauðka : úrval úr Speglinum - 01.06.1936, Síða 136
Góu-sformar.
í góulok jeg gríp á Iofti andann,
þó geysi stormar yfir land og sjó.
Vjer eigum maga enn þá fyrir landann,
„þó ytra her'ði frost og kyngi snjó“.
Stormar geta stundum veriS seigir,
og stöðugt oft hið slæma tíðarfar,
hvað sem Þorkell veðurviti segir,
það verður svona fram um kosningar.
Þó að veðrin vingsi stundum lokkum,
í veröld kvenna — á himnum skýjafar.
Stormar þeir, sem feykja í sundur flokkum,
eru’ f jandi lítið betri en Magnúsar.
Möller veifar voðalegum skönkum,
og virðist ekki fjúka — því er ver.
En seðlar fjúka úr okkar blönku bönkum,
þó ber ekki’ á að Möller fargi sjer.
Ekki fækkar íhaldsmanna syndum,
enginn fýkur þar að nýjum sið.
Aðrar flökta fyrir öllum vindum,
og flestar þeirra kannast Tryggva við.
Þó að storminn standist mögnuð kempa,
sem Stalin hefir leyst frá allri synd,
sje klæðnaðurinn hattur stór og hempa,
er hræðilegt að standast slíkan vind.
Góustormur hrögðum ýmsum beitir,
bændum koma illa sporin hans.
Jónas fýkur austur um allar sveitir,
þeir eru jafnvel hræddir norðanlands.
Nú þyrlast víða Moggans dót og Moðið,
úr Manga Torfa er fokinn ailur sans.
ÓIi Thors fær ekki neitt í soðið —
eilíf rok á kontórunum hans.
Já, tíðarfarið vekur margan vandann,
vargur bítur austur um Mýrdalssand.
Menn hemjast varla við að brugga iandann,
og varla að dugi nokkurt hjónaband.
Þú ert úti, því er fjandans miður,
þorrakyrð, sem ekki hreyfðist fet,
alstaðar var andleysi og friður,
og Ástvaldur í næði seldi ket.
Þá var sendisveinadeildin stofnuð,
— svona verður ekki fyrir sjeð. —
Nú er sendisveinadeildin klofnuð,
já, svona storma er ekki að spauga með.
Menn órar fyrir mörgu í djörfum draumum,
þó dreymi ekki nokkurn minstu baun,
að „kolIu“ ræki móti stormi og straumum,
og stæðust falskir eiðar hverja raun.
Veðrin hafa voðalega gaSla,
sem verkar djöfuSlega á huga minn.
Stefnumótin stöðugt niður falla,
— Steinka er hætt að mæta — fyrst um sinn.
Góuvindar, steypið öilum stundum
af stóli því, sem á að vera frá,
en feykið ekki frá mjer ungum sprundum,
nje flöskum, sem að nokkur dropi er á.
Já, góustormar, farið þið með fjöllum,
og feykið öllu burt, sem hverfa má.
Vitanlega verstir eru af öllum
vindar þeir, sem koma innan frá. Z.
ir aftur, að reglulegt þing verður ekki fyrr en næsta sumar, að afstöðnum kosningum, og af því leiðir
enn, að Ásgeir situr lengur en ella hefði verið og græðir ca. 12 mánaða hýru. Hefir margur lotið að
minnu í kreppunni. — Illkvittnir menn segja,, að hann hafi pantað ríkiserfingjann hingað í þessum
tilgangi, en auðvitað er það lýgi á hann Ásgeir. — Sumir eru að segja, að ríkiserfinginn hafi ekki viljað
búa á Hótel Borg, meðan hann stóð hjer við í fyrra skiftið, vegna þess, að hakakrossfáninn hafi blakt-
að þar. Þetta er mesta vitleysa, því það var bara sparnaðarráðstöfun að búa um borð í íslandinu, og af
sömu ástæðu ferðaðist hann ekki með íslenskum skipum, eins og Vísir vildi, að hann gerði.
Sum blöðin hafa kallað ríkiserfingjann ríkisarfa. Oss finnst það illa viðeigandi, og það vitum
vjer, að aldrei myndi það líðast stjórnarblaði að kalla konungborinn mann plöntu. Því gerum vjer það
hjer með ekki.
132