Strandapósturinn - 01.06.1978, Page 59
Þórdís Magnúsdóttir:
I hættu
Þórdís Magnúsdóttirfæddist á Hvalsá í Steingrímsfirði árið 1910. Hún
ólst upp hjá hjónunum Guðrúnu Grímsdóttur og Jóni Magnússyni í Skál-
holtsvík og dvaldi hjá þeim fram yfir fermingaraldur. Þá fór hún að
Krossárbakka til systur sinnar, Vilborgar Magnúsdóttur og manns hennar
Magnúsar Sturlaugssonar. Síðan fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi og
var tvö ár í Vatnsdal. Eftir það lá leið hennar til Reykjavíkur. Hún dó um
hálf þrítugt.
Sigurgeir Magnússon.
Það var í júnímánuði að ég og önnur stúlka vorum að taka
saman tað á húsatúninu en pabbi hlóð hlaðann. Þetta var í
brakandi þerri og við kepptumst við allan daginn. Klukkan 9
kallaði mamma á mig heim til að sækja kýrnar. Ég fór fljótt heim
og inn í bæ. Mamma stóð í búrdyrunum.
„Komdu hérna, Anna mín,“ sagði hún, og er ég kom inn í
búrið rétti mamma mér brauðsneið með osti ofan á. Ég þakkaði
henni fyrir og sneri við út aftur um hæl og greip með mér svipu,
sem reis upp við bæjardyrastafinn innanvert. En þá heyrði ég
mömmu kalla: „Varaðu þig á honum bola.“ Eg játaði því
hugsunarlaust og hljóp á dyr og linnti ekki á sprettinum fyrr en
ég var komin út fyrir tún.
Þar var forarflói og mátti ég gæta allrar varúðar að vaða ekki.
Þegar komið var yfir flóann tók við hár og brattur hryggur, er
nefndist Leiti. Ég gekk hægt upp Leitið og nú fann ég fyrst að ég
var þreytt. Eg hugsaði til kúnna, ef þær sæjust nú ekki af leitinu,
þá væru þær langt í burtu.
57
L