Strandapósturinn - 01.06.1993, Síða 19
nýjan farveg út með flugvellinum og út í Hvítá, sem venjulega er
aðeins smálækur. Þar myndaðist geysistórt uppistöðulón fyrir
ofan þjóðveginn, og rann úr því yfir veginn lengi dags. Um
kvöldið brast hins vegar vegurinn og vatnið beljaði til sjávar. Þar
með rofnaði allt vegasamband við norðurhluta Strandasýslu og
Isafjarðardjúp, en vegagerðarmönnum tókst að ljúka viðgerðum
á rúmum sólarhring. í þessn hlaupi bar Kálfaneslækurinn fram
tugi þúsunda rúmmetra af jarðvegi, en víðar urðu miklar jarð-
vegsskemmdir. Þannig kornu stór sár í grónar hlíðar Staðardals,
einkum í Ivirkubólshlíð, þar sem gríðarlegt rnagn af jarðvegi rann
út í Staðará.
Maí var með kaldasta móti. Einkum var veður óhagstætt um
niiðjan mánuðinn, en þá ríkti vetrarveður í nokkra daga. Eins og
vorið áður snjóaði talsvert á fjöllum um þetta leyti, og sem dæmi
má nefna að erfiðlega gekk að halda veginum yfir Steingríms-
þarðarheiði opnum allt fram í júní.
í júní var óvenju kalt og sólarlítið, og svipað má segja umjúlí.
Reyndar var sumarið allt með kaldasta móti, og höfðu rnargir á
orði að sumarið hefði eiginlega aldrei komið. A hitt ber þó að líta,
að sumarið var með öllu laust við stórviðri og miklar sveiflur.
Hitastigið var löngum 6-9 stig, en hret eða hitabylgjur gerðu ekki
vart við sig. Því var sumarið í reynd hagstætt fyrir gróður og
búfénað, þó að sóldýrkendur fyndu lítið við sitt hæfi.
Síðustu dagana í ágúst fór veðrið hlýnandi, og í september var
einstök veðurblíða. Þegar kom fram í mánuðinn mátti enn sjá
skrúðgræn grös á fjöllum, en og var haft á orði að sjaldan hefði
gróðurinn verið betur á sig korninn á þessurn árstíma.
Októbermánuður var einnig með besta móti. Um miðjan mán-
uðinn byrjaði að snjóa, en snjó tók jafnan upp innan fárra daga.
Um rniðjan nóvember var sums staðar orðið haglaust í sveitum
eftir að snjóað hafði af suðvestri.
Snemrna í desember fór tíðin að líkjast vetri, og var víðast hvítt
yfír að líta fram til jóla. Aldrei snjóaði þó rnikið, né gerði mikil
illviðri, en þó nóg til þess að gæftir til sjávar voru með lélegasta
móti. Samgöngur á landi gengu þó ágætlega rniðað við árstíma og
nær engar truflanir urðu á skólahaldi ólíkt því sem gerðist vetur-
17