Strandapósturinn - 01.06.1993, Síða 23
sem barst á land á Hólmavík og Drangsnesi var ekið burt til
vinnslu annars staðar, þar sem hærra verð fékkst fyrir aflann.
Einkum varð þetta áberandi þegar leið á haustið. I lok nóvember
var svo komið, að ákveðið var að hætta fiskvinnslu í frystihúsun-
um við Steingrímsfjörð vegna hráefnisskorts ogbágrar afkomu.
Lítið var um úthafsrækju út af Húnaflóa fyrri hluta sumars, og
færðu sumir bátarnir sig þá allt austur á Skjálfandaflóa og lönd-
uðu afla sínum á Húsavík. Rækjunni var síðan ekið þaðan til
vinnslu á Hólmavík og Drangsnesi. Bátarnir sem stunduðu þessar
veiðar frá þessum stöðum voru nú enn færri en áður, þar sem
Guðrún Ottósdóttir var seld til Flateyrar á árinu. Hins vegar hefur
Strandamönnum tekist að halda sínum hlut í veiðiheimildum með
því að kaupa kvóta af þeim bátum sem flust hafa af svæðinu. Verð
á rækjuafurðum var mjög lágt á árinu 1993, og afkoma í veiðum
og vinnslu því í lágmarki.
Margir bundu miklar vonir við grásleppuveiðar á Ströndum
vorið 1993. Mikið var keypt af netum og öðrum grásleppuútgerð-
arvörum, og leyfi til grásleppuveiða voru eftirsótt. Ofmælt er að
segja að grásleppuvertíðin hafi brugðist algjörlega, en þó má til
sanns vegar færa að sú hafi orðið raunin rniðað við væntingar
manna. Margir höfðu vart fyrir kostnaði við veiðarnar, og meðal-
afli báta varð aðeins um helmingur af því sem verið hafði árið
áður. A Drangsnesi voru söltuð hrogn í 326 tunnur, en á meðal-
vertíð eru tunnurnar um 500 talsins. Á móti kom að verð á
hrognum var eitthvert það hæsta sem um getur, eða um 1300
mörk fyrir tunnuna. I íslenskum krónum nam verðhækkunin
milli ára um 36%.
Haustið 1993 var aðeins leyfð veiði á 1000 tonnum af rækju í
Húnaflóa. Veturinn áður var þessi kvóti 1500 tonn, en 2000 tonn
veturinn þar áður. Þannig hafði kvótinn dregist saman um 50% á
tveimur árum. Sem fyrr kom helmingur þessa magns, eða 500
tonn, í hlut Hólmvíkinga og Drangsnesinga. Innfjarðarrækju-
veiðarnar gengu heldur illa um haustið. Rækjan var mjög smá og
nýttist illa til vinnslu. Óánægja var meðal útgerðarmanna með
samráð rækjuverksmiðjanna við flóann um verð fyrir rækjuna, og
fékk Samkeppnisstofnun kæru af þessu tilefni. Einnig töldu út-
21