Strandapósturinn - 01.06.1993, Síða 25
tímabili smábáta lauk, hafði hún landað um 93 tonnum í Hólrna-
víkurhöfn frá ársbyrjun. Arið 1992 var afli Sædísar 168 tonn!
Þrátt fyrir gjaldþrot Kaupfélags Strandamanna varð áframhald
á útgerð og fiskvinnslu í Norðurfirði, en Gunnsteinn Gíslason tók
fiskvinnsluhúsið á leigu af þrotabúinu og hélt rekstri þess áfram.
Þar lögðu upp uþb. 6 trillur og síðan tveir
línubátar eftir að kom frarn á haustið. Alls var landað um 100
tonnurn af fiski á Norðurfirði á árinu, og var sá afli nær allur
saltaður á staðnum.
Fiskvinnslan í Norðurfirði gekk betur en árið áður, og breytti
miklu um atvinnumöguleika fólks í hreppnum. Einnig voru tölu-
verð umsvif í fiskverkun LýðsHallbertssonar í Djúpavík, en þar
var afli ýrnist saltaður á staðnum eða sendur á markað. Nokkur
óvissa ríkir um framhald fiskvinnslu í Djúpavík vegna hertra
skilyrða fyrir vinnsluleyfum. Þó eru taldar allgóðar líkur á að unnt
verði að halda vinnslu þar áfrarn.
Utgerð frystitogarans Hólmadrangs gekk fremur illa á árinu
1993, og afli var í rninna lagi. I ágústmánuði var ákveðið að senda
skipið til veiða í svonefndri Srnugu í Barentshafi. Þessar veiðar
gengu misjafnlega, en um haustið fékk skipið þar einhvern mesta
afla sem um getur. Mest af þessum afla var rígvænn þorskur.
Veiðiferðin stóð hátt á annan mánuð, og að henni lokinni var
haldið til Hull, þar sem landað var afla fyrir um 90 milljónir
króna. Mun þetta hafa verið eitthvert mesta aflaverðmæti sem
ísklenskt skip hefur fengið í einni veiðiferð. Þessi veiðiferð gaf
útgerðinni um þriðjung af tekjum ársins og breytti mjög miklu í
rekstri skipsins. Skipverjar fengu einnig nokkuð í sinn hlut, en í
fjölmiðlum kom fram að hásetahlutur í túrnurn hefði verið um 1,1
milljón króna. í árslok lét Hlöðver Haraldsson af störfum hjá
fyrirtækinu, en hann hefur verið skipstjóri á Hólmadrangi nær
frá upphafi.
Drangavík hf., sem gerði út rækjuskipið Drangavík ST-71, var
tekið til gjaldþrotaskipta á árinu og er þar með úr sögunni. Fisk-
vinnslufyrirtækið Hlein hf. var einnig úrskurðað gjaldþrota. Þá
neyddist útgerðarfyrirtækið Rúna hf. til að selja bát sinn, Guð-
rúnu Ottósdóttur ST-5. Freyr ST-11 var einnig seldur burt, en í
23