Strandapósturinn - 01.06.1993, Blaðsíða 51
áður hefur komið fram.
Nú fækkar þeim óðum, sem kunna skil á þeim ótrúlega atburði,
sem hér hefur verið greint frá, enda á hann meira en 80 ár að baki,
þegar lýsing hans er færð í letur. Þykir því við hæfí að fela
Strandapóstinum til varðveislu þau minningabrot, sem hér hafa
verið tekin saman. En jafnframt eru frekari upplýsingar og at-
hugasemdir lesenda vel þegnar.
Eftirmáli
Þáttur þessi um björgun Magnúsar Jónssonar á Hvalsá af sundreið á
Steingrímsfirði er byggður áfrásögn Þorsteins Magnússonar á Hólmavík
(f. 24. ág. 1901), en hann er sonarsonur Jóns Þorsteinssonar, er þá bjó á
Heydalsá og átti hlut að björgunarafrekinu. Einnig er stuðst við ritaða
heimild Gísla Jónatanssonar í Naustavík (f. 29. júní 1904), sem er
samhljóða í öllum aðalatriðum. Það sem helst ber á milli eru eftirtalin
aukaatriði:
1. Erindi Elínborgar. 2. Nöfn liestanna og litur. 3. Staðurinn þarsem
hryssuna bar að landi.
í þessum þætti er farið eftir frásögn Þorsteins án þess að nokkuð sé
fullyrt um að hún sé réttari. Má þvísjá hér aðframan, hvað liann hefur til
málanna að leggja. En Gísli segir um erindi Elínborgar, að hún hafi ætlað
að Kletti til að liitta móður slna. Hann telur, að hryssa Magnúsar hafi
verið kölluð Stroka, en Elínborg hafi verið á Jörp oggefur það nafn litinn
til kynna. Loks segir Gísli, að hryssu Magnúsar hafi rekið á Bjarnarnesi
með lvnakk og beisli. Frásögnina af hnakktökunni hefi ég eftir föður
mínum, Guðbrandi Björnssyni bónda á Heydalsá 1917—1946, (f. 14. maí
1889).
Loks hef ég borið nokkur efnisatriði undir Þórdísi Benediktsdóttur frá
Smáhömrum, er nú dvelur í Stykkishólmi, (f. 4.feb. 1902). Styðurhúnþá
skoðun Gísla, að hryssuna hafi rekið að landi á Bjarnarnesi. Hinsvegar
ber henni saman við Þorstein um lit hennar, telur hana hafa verið gráa en
kallar hana Bólu og er þar komið þriðja nafnið. Þórdís segist muna vel
eftir hryssu Elínborgar. Hún hafi verið brúnsokkótt og kölluð Sokka, sem
einnig er þriðja nafna á hesti Elínborgar og í góðu samrœmi við lýsingu
Þorsteins, sem nefnir hryssuna Hosu.
49