Strandapósturinn - 01.06.1993, Page 60
hefðu verið jarðaðir þarna. Rétt fyrir utan þennan stað er sléttur
fjöruvöllur, sem sjór fellur nú yfir, og er nefndur Leikvöllur.
Guðmundur G. Bárðarson taldi hinsvegar að völlur sá, sem dysin
eru á, mundi áður hafa heitið Leikvöllur, en ekki fjaran.
Eftir nokkrar mínútur erum við á brúninni, og horfum ofan í
hin djúpu Hvalsárgljúfur á vinstri hönd, en Hvalsárdalur og
lrjásetuplássið blasir við beint framundan.
Þótt tún væru algræn og vel sprottin, var dalurinn ennþá mó-
grár. Fífan, græna grasið og berin voru ennþá ekki komin. Guð-
jón og Magnús réðu nú förinni. Við fórum í ótal króka fyrir
keldur og ófærur fram með ánni, meðfram Landamerkjalaut og
upp á Hrísás. Þar fundu þeir smalahús sitt. Voru nú ekki eftir
nema 30 cm háir veggir af svo reisulegu húsi, grasi grónir utan og
innan. Hér var tekin hvíld fyrir hestana og fólkið, enda voru
brekkurnar hinar sömu og hrísrunnarnir jafn gestrisnir og áður.
Sólin skein með mikilli velvild, eins og hún vildi bjóða okkur öll
hjartanlega velkomin í dalinn.
Nú var riðið niður á Heimstavað og fram Eyrar. Var þar margt
að sjá, margir skurðir, en þó nokkuð samansignir. Júlíus minnti
mig á þá marga og kvaðst hann oft hafa verið þreyttur að loknu
dagsverki í þeim. Man ég eftir því, að Guðmundur Bárðarson fór
að morgni yfir fjall að Þorpum eða Heydalsá, tók okkur Jóhannes
Guðmundsson með sér upp á Breiðina, mældi okkur út ákveðinn
stikufjölda, sem við ættum að bæta við skurðlengdina, svo mætt-
um við eiga frí eftir það. Okkur þótti verkið nokkuð mikið, en
kepptumst við að klára það, svo að við þeim mun fyrr gætum sinnt
okkar barnslegu áhugamálum. Guðmundur kom heim seint um
kvöldið. Spurðum við hann þá hvort hann hefði séð það sem við
höfðum gert. Kvað hann svo vera og sér vel líka, en sagðist hafa
rnælt sér út jafn margar stikur í viðbót og hafa verið að klára það.
Ég man það eitt að okkur fannst mikið til um starf hans í þetta
skiftið.
Hér var nú meira fuglalíf en ég minntist frá fyrri árum. Létu
þeir mjög mikið, enda ekki vanir svo mikilli umferð sérstaklega
svo snemma á sumri.
Þá var stigið af baki á Selinu, sprett af hestunum, sem tóku
58