Strandapósturinn - 01.06.1993, Page 114
umsvif í atvinnulífi hreppsbúa. Hér var líka miklu erfiði létt af
þeim sem sjóinn sóttu þar sem ekki þurfti lengur að róa til miða
eða af miðum. Og það var allt annað að bregða slíkum bát fyrir sig
í ýmsa snatttúra en áður var þegar einungis varð að treysta á segl
og árar. Var mörg slík ferð farin á Ingólfi meðan hann var við lýði.
Eftir að Ingólfur var úr sögunni endurnýjaði Kaupfélagið ekki
skipastól sinn, enda fóru þá erfiðir tímar í hönd, svo að öðru
þurfti að hyggja. Voru þar að verki afleiðingar fyrri heimsstyrj-
aldar, sem hafði víðtæka kreppu í för með sér að stríðinu loknu og
verðhrun. Með komu Ingólfs má segja að hákarlaveiðum á opn-
um skipum væru lokið þó Ófeigi væri haldið úti eitthvað lengur.
Fyrsti formaðurinn á Ingólfi í eigu kaupfélagsins var Sturlaug-
ur Sigurðsson ættaður frá Breiðafirði, traustur maður og ötull.
Var hann bæði formaður og vélstjóri. Mun hann hafa verið tvö
eða þrjú ár með Ingólf.
Sturlaugur og Hallfríður Guðmundsdóttir frá Ófeigsfirði
felldu hugi saman. Jafnframt því sem hún hafði húshald á hendi
fyrir föður sinn Guðmund Pétursson bónda í Ófeigsfirði og fram-
kvæmdastjóra Verslunarfélagsins og Torfa bróður sinn, sem var
starfsmaður þess með föður sínum, annaðist Hallfríður fang-
gæslu fyrir skipshöfn Ingólfs eftir því sem þess þurfti með.
Þau fluttu síðan til Isafjarðar þar sem þau áttu heima í mörg ár,
en fluttu síðar til Reykjavíkur. Hallfríður var einstök gæðakona.
Hún var rösk til orðs og æðis og lá hátt rómur. En hún átti svo gott
og hlýtt hjarta og var með afbrigðum örlát svo að gjafmildi hennar
var oft umfram getu. Hún var sú kona sem öllum þótti vænt um
sem kynntust henni þrátt fyrir örlyndi hennar. Hún mátti ekkert
aumt sjá. Sjálfur kynntist ég henni vel og minnist hennar með
þökk og hlýhug. Sturlaugur og Hallfríður áttu mörg börn.
Eftir að Sturlaugur lét af skipstjórn var Magnús Hannibalsson
formaður á Ingólfi og jafnframt vélstjóri. Magnús var góður
sjómaður, enda alvanur sjósókn á Isafirði og víðar. Hitt þótti bera
af hvað góður vélamaður hann var. Var sagt að hann gæti látið
hvaða rokk sem væri snúast. Vélar voru þá frumstæðari en síðar
varð og nú er.
Gekk útgerð Ingólfs vel undir stjórn hans. Magnús ílentist hér
112