Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 23
semina, enda hefur reynslan sýnt að ef vel er á haldið, getur
handverkið verið umtalsverður búhnykkur fyrir byggðarlagið.
Töluverð hreyflng komst á nýtingu rekaviðar á árinu. Pétur
Guðmundsson í Ófeigsfirði stofnaði ásamt fleirum fyrirtækið
Háareka hf. Þeir félagar keyptu síðan nrjög öfluga sögunarvél frá
Finnlandi. Ætlun þeirra er að ferðast með sögina um landið og
saga fyrir rekabændur. Sumarið f994 var sögin í notkun í Ófeigs-
firði og víðar, og urn haustið var hún í notkun sunnar á Ströndum.
Sigursteinn Sveinbjörnsson í Litlu-Ávík og Úlfar Eyjólfsson í
Krossnesi keyptu einnig stórvirka bandsög, sem verður m.a. not-
uð til að saga vandaðan borðvið úr rekaviði.
Afkoma kaupfélaganna á Ströndum var misjöfn eins og geng-
ur. Á aðalfundi Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík f994
kom fram að mjög mikill halli varð á rekstri félagsins á árinu Í993,
eða um 32 milljónir króna. Þar munaði mest um mjög bága
afkomu frystihúsanna, en á árinu tapaði frystihúsið á Hólmavík
um 19 milljónum og frystihúsið á Drangsnesi um 13 milljónum.
Aðrir rekstrarliðir voru nálægt núllinu, en í heild varð 27% sam-
dráttur í veltu félagsins frá árinu áður. Þessi útkoma var með því
versta um árabil, en á árinu 1994 brá mjög til hins betra með
auknum rækjuafla og stórhækkuðu verði á afurðum.
Rekstur Kaupfélags Hrútfirðinga á Borðeyri gekk einnig illa á
árinu Í993. Þar var tapið um 10 milljónir króna. Kaupfélag Bitru-
Ijarðar á Óspakseyri skilaði hins vegar 868 þúsund króna hagnaði
1993.
Rekstur kertaverksmiðju Mánaskins hf. á Borðeyri hefur geng-
ið erfiðlega, og í árslok 1994 ríkti óvissa um framtíð fyrirtækisins.
Markaðsmálin hafa reynst Mánaskini þung í skauti, þar sem erfitt
er að keppa við innflutta framleiðslu.
Mannfjöldi
Þann 1. des. 1993 voru íbúar Strandasýslu 1048. Þá voru íbúar
Nauteyrarhrepps í Isaljarðardjúpi 33, en hreppurinn var samein-
aður Hólmavíkurhreppi 11. júní 1994. Þann 1. des. 1993 var því
1081 íbúi á svæðinu öllu. Þann 1. des. 1994 voru íbúarnir orðnir
21
L