Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 63

Strandapósturinn - 01.06.1994, Page 63
það stundum öðru vísi en systirin. Eitt sinn var Gerða á norðurleið með einu af strandferðaskipunum og voru systkinin eitthvað óánægð með veðurspána, taldi Guðrún að illt gæti orðið í sjóinn fyrir Hornið í slíku veðurútliti. Grímur samsinnti því en gat þess þá, að þetta væru stór og öflug skip, sem þyldu volkið vel. Þeim grandaði tæpast neitt nema ef svo ólánlega vildi til að þau rækjust á tundurdufl. Lítil huggun varð systurinni að þessum síðustu ábendingum Gríms en svona voru þær oftast. Þessi tilsvör voru að ég hygg eins konar ættarfylgja, eitthvað sem þessu fólki var ósjálf- rátt. Nokkru eftir að þau Grímur og Gunna fluttu að Nesi í Grunna- vík og Friðgerður var farin að búa á Dalvík voru þær mæðgur að tala saman í síma og segja hvor annarri fréttir úr sínum heimahög- um. Var Gerða m.a. að útskýra nýlega afstaðna jarðarför þar í þorpinu. Þótti sú athöfn í styttra lagi og í einhverjum flýti að henni staðið. Grímur komst ekki hjá því að hlusta á það sem fram fór og er þær mæðgur höfðu lokið samtalinu sagði hann: „Þeir eru ekki lengi að jarda á Dalvík, þeir yrdu ekki lengi að jarda þig Gunna, vinna allt í akkordi. Maður myndi ekki ljúka við að beita eina lóð á meðan þeir væru að jarda. Dugnaðarmenn á Dalvík, áá, áá’.“ Sögurnar um tilsvör Gríms hafa borist mér frá fólki sem varð honurn lengur samferða á lífsleiðinni en ég og hefi ég reynt að korna þeim til skila eftir efnum og ástæðum. Ýmsu hef ég reynt að hagræða til þess að það félli nær málfari þessa einstæða manns og vona að mér verði það fyrirgefið. Að lokum langar mig svo til að hnýta hér aftan við síðustu söguna sem ég heyrði af tilsvörum hans. Hún ber það með sér meðal annars, að fátt mun hafa náð að raska ró hans eða koma honum úr jafnvægi. Það var haft eftir Grími, ef góðviðri hélst lengur en einn eða tvo daga í senn, að nú væri Strandaveður og átti þá við Hornstrandir. Um leið og vora tók greip útþráin hann og þó að hann væri nú tekinn fast að eldast héldu honum engin bönd. A undanförnum áratugum hafði karlinn með hvíta trefil- inn birst í námunda við björgin og enn skyldi farið á fornar slóðir, þótt flest væri breytt frá því sem áður var , sveitin að mestu farin í eyði og bjargsig smátt og smátt að leggjast af nema sem sport 6f
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.