Strandapósturinn - 01.06.2012, Side 8
8
Dagur tvö – 19. júní
Leiðsögumanninn okkar, hann Kristján Eldjárn Hjartarson,
hittum við í Fagraskógi. Það an var Davíð Stefánsson skáld ættaður
og er búið að reisa þar glæsilegan minnisvarða um hann.
Nú lá leið okkar til Dalvíkur þar sem ekið var um staðinn og
bærinn skoðaður. Við skoðuðum m.a. minjasafnið og
menningarhúsið sem var byggt af Sparisjóði Svarfdæla og síðan
gefið bænum til afnota. Mættu fleiri bankar taka þá til fyrirmyndar.
Kristján fræddi okkur svo um staðhætti og bróðir hans, Hjörleifur,
sagði okkur frá fjölbreyttu fuglalífi staðarins og hvernig faðir
þeirra fékk friðlýst svæði við tjörnina sem er þarna við bæinn.
Frásögnin var öll hin skemmtilegasta en lítið sáum við af fuglum
að þessu sinni.
Þá var keyrt inn í Svarfaðardal þar sem við skoðuðum kirkjuna
á Tjörn. Móðir Kristj áns, Sigríður Hafstað, sagði okkur sögu
kirkjunnar og svo sungu þau Kristján, kona hans, Kristjana, og
Sigríður fyrir okkur nokkur lög. Þetta var bæði skemmtileg og
hátíðleg stund og þökkuðum við vel fyrir okkur. Kristján sýndi
okkur pínulítið hús sem Kristján Eldjárn, fyrrverandi forseti, átti
en er nú í eigu Þjóðminjasafns. Húsabakkaskóli var byggður 1955
en starfaði til 1972 og var þá stækkaður. Nú er þar rekin listasmiðja
(hand verkssetur).
Síðan var farið í sundskála þeirra Svarfdæla sem var byggður
1929 en hefur verið endurbættur í tímanna rás og nú vill fólk fá
heitan pott þar. Bærinn Bakki er á þessum slóðum og sagan segir
að þaðan séu bræðurnir Gísli, Eiríkur og Helgi. Nykurtjörn er
þarna rétt fyrir ofan, lítil og falleg. Úr henni rennur lækur sem
oftast er lítill en getur orð ið að skaðræðisfljóti. Bærin Hóll er eitt
myndarlegasta býlið í dalnum en þar rétt hjá féll snjóflóð og tók
bæ af árið 1952. Heljardalsheiði liggur upp úr dalnum. Þar er
hægt að fara yfir í Skagafjörð bæði gangandi og á hestum.
Skíðadalur er mikill dalur, þar eru mikil berjalönd. Við stoppuðum
við Tungurétt, þar sem er lítið hús, og þar fengum við líka þetta
dýrindiskaffihlaðborð framreitt af kvenfélagskonum sveitarinnar.
Áfram héldum við inn dalinn þar sem við skoðuðum lítið hús sem
hægt er að taka á leigu.
Síðan var keyrt hinum megin við ána niður Svarfaðardal og
Kristján hélt áfram að fræða okkur um bæjarnöfn, fossa, ár og