Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 10
10
gengið í hina áttina og alla leið út að kirkjunni. Grímseyingar
eiga mjög fallega kirkju og þegar við vorum búin að skoða hana
fengum við okkur smá kaffisopa áður en haldið var í ferj una sem
lagði af stað um kl. 16:00. Áhyggjur mínar af að halda á sjó með
stóran hóp af fólki voru ástæðulausar því að veðrið lék einnig við
okkur á heimleiðinni.
Á heimleiðinni voru allir spenntir að komast upp á hótel og
þvo af sér ferðarykið og slaka á eftir ferðalag dagsins. En við
urðum fyrir smá töfum því að það hafði orðið bíl slys. Eins og
gerist í svona aðstæðum leitar hugurinn til þeirra sem eiga um
sárt að binda. Ekki óraði okkur fyrir að við þekktum neinn sem
lent hefði í slysinu. Við kvöldmatinn fengum við svo hringingu
þar sem okkur var tilkynnt að Kristján, fararstjórinn okkar, hefði
lent í slysinu og lægi á spítalanum á Akureyri, hryggbrotinn og
brotinn á fleiri stöð um. Ekki vantaði hugulsemina hjá manninum,
sem lá á spítala stórslasaður, því að hann var búinn að útvega
okkur nýjan leiðsögumann. Ég átti ekki til orð yfir umhyggjuna í
okkar garð en þakkaði honum kærlega fyrir og óskaði honum
góðs bata með kveðju frá hópnum. Nýi leiðsögumaðurinn er
bróðir Kristjáns og heitir Þórarinn. En nú var bara að halda áfram
að borða og skemmta okkur fram á kvöld þó að fréttirnar hafi
óneitanlega haft áhrif á mannskapinn.
Dagur fjögur – 21. júní
Nú var komið að kveðjustund í Skjaldarvík eftir að við höfðum
notið þar mjög góðrar þjónustu. Góður matur, fín herbergi og
gott viðmót. Kl. 9:00 vorum við öll tilbúin að leggja af stað og
Þórarinn, nýi fararstjórinn, mættur. Hann byrjaði á að segja
okkur frá fjöllum og bæjarnöfnum, fór með vísur og söng á leið
okkar út í Ólafsfjörð. Þórarinn sagði okkur ýmsar þjóðsögur og
munnmælasögur sem tengdust svæðinu og Múlanum, m.a. um
landnámsmanninn Ólaf Bekka og Hálfdanarhurð, sem er rauðleit
skella á Múl anum, og hvernig séra Hálfdan hjálpaði bónda að
endurheimta konu sína frá skessunni í Hvanndalabjörgum. Við
sáum á leið okkar glitta í foss sem heitir Mígandi og svo Gríms ey
í fjarska. Á þessu svæði er mjög snjóþungt.
Nú lá leið okkar í gegnun nýju göngin til Héðinsfjarðar sem
eru 7,1 km löng í heild ina. Héðinsfjörður er mjög fallegur og þar