Strandapósturinn - 01.06.2012, Page 60

Strandapósturinn - 01.06.2012, Page 60
60 Dagbækur Þorvalds eru varðveittar í Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn, safnmark NKS 3011 4o. Vegna útgáfunnar voru fengnar þaðan stafrænar myndir af færslunum úr ferð hans um Strandir sumarið 1886 og byggist útgáfan á þeim. Efnið sem um er að ræða er í III. hefti á bls. 38–151 og í IV. hefti á bls. 1–161. Hér er aðeins prentað meginmál dagbókanna; flestum teikningum og skissum er sleppt svo og minnisgreinum, mest mælingarniðurstöðum, sem Þorvaldur færði inn aftan til í heftin. Nokkrum minnisgreinum, sem þóttu áhugaverðar, er þó skotið inn sem neðanmáls- greinum við dagbókartextann á viðeigandi stöðum. Það hefur verið haft að meginmarkmiði við að búa þetta efni til prentunar að gæta sjálfsagðs trúnaðar við frumritið og gæta þess jafnframt að það verði sem aðgengilegast lesendum. Í samræmi við það hefur textinn verið skrifaður upp orðrétt, orðmyndum haldið og beygingarmyndum, stafsetning hefur verið færð til nútíðarhátta svo og greinarmerkjasetning að verulegu leyti og forðast hefur verið að nota tákn sem kynnu að draga úr læsileika. Þá hafa verið samdar skýringar sem prentaðar eru neðanmáls. Útgefendur hafa skipt færslu hvers dags í efnisgreinar en slík skipting er oft ekki hjá Þorvaldi. Sömuleiðis hefur málsgreinum, sem stundum eru alllangar, verið skipt upp þar sem betur þótti fara. Augljós pennaglöp hafa verið leiðrétt, oftast án athugasemda, en þar sem vafi þykir leika á um orðmynd er þess getið neðanmáls eða notaðir hornklofar. Styttingar hvers konar og skammstafanir hafa jafnan verið fylltar athugasemdalaust og án þess að auðkennt sé. Þó þótti betur fara að halda þremur erlendum skammstöfunum: ca. (Þorvaldur ritar ávallt c.) = circa (sirka, um það bil), etc. = et cetera (og svo framvegis) og p. = pagina (blaðsíða). Þá þótti rétt að rita „pund“ fyrir pundmerkið ( ) sem algengt var á 19. öld en sést nú nær aldrei orðið í íslensku samhengi. Latnesk tegundaheiti, oft skammstöfuð í handriti, eru ávallt skrifuð fullum stöfum með beinu letri (dæmi: Ranunculus pygmæus). Í handritinu eru töluorð oftast rituð með tölustöfum og gjarnan er tölustöfum og bókstöfum blandað saman. Í útgáfunni hafa töluorð verið rituð með bókstöfum þar sem betur þótti fara og þá tekið mið af því sem nú er algengast í prentuðum textum. Þar sem ósamræmi er í stafsetningu tökuorða er hún samræmd að nútíðarhætti í þeim orðum sem virðast vera aðlöguð en þegar Þorvaldur notar orðmynd sem er frábrugðin því sem nú tíðast eða tökuorðið er greinilega ekki aðlagað hefur stafsetning/orðmynd ekki verið samræmd. Þá hefur sérstaklega verið hugað að því að farið sé rétt með örnefni. Ef ósamræmi er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.