Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 63
63
pygmæus.7 Lögin hallast út. Komum að Hamri, drukkum kaffi
þar í baðstofunni. Jón bóndi8 frændi gamla dr. Hjaltalíns. Hann á
strendan agatknapp, líklega af sverði, fundinn í Snóksdal.
Riðum svo út dalinn og fyrir Kollafjarðarbotn út að Kolla-
fjarðarnesi um kvöldið. Terrassar9 þar fyrir ofan mýrarnar fyrir
botninum, sem heyra undir Ytra-Fjarðarhorn,10 og bólar á þeim
út með Kollafirði. Lögin hallast vestan við Kollafjörð 2–3° út að
flóanum. Rétt út undir Kollafjarðarnesi er undarleg mó-
bergsmyndun að koma fram, rautt neðan til, og sést við og við út
fyrir Hvalsá, á einum stað sprungið frá basaltið og sigið niður.11 Sú
dislocation paralell12 með göngum sem eru með sjónum.13 Nálægt
Hlíð grængrár leir rétt við fjöru mál í bökkunum, basalt ofan á.
3. ágúst. Frá Kollafjarðarnesi. Hér vex mjög mikið af skarfakáli
kringum bæ inn og upp um allan bæinn, Halianthus peploides14
í fjörum.
Í hittiðfyrra var plægt tún á Smáhömrum og komu þá upp tveir
hvalkjálkar ca. 40 faðma frá sjó. Hér á Kollafjarðarnesi, þegar
plægt var efst í túninu, komu upp margar skeljar og rekaviður
utar. Það var skorinn skurður við tún jaðarinn að norðvestanverðu,
ca. 90 faðma frá sjó, paralellt með háum bökkum efra. Þar er í
skurðinum malargrjót með öðu, Buccinum undatum,15 Purpura
la pillus,16 olnbogaskel, Littorina obtusata,17 Littorina littoralis,18
7 Dvergsóley.
8 Jón Sighvatsson, bóndi á Hamri 1870–1891 (Jón Guðnason (1955), bls. 199), syst-
ursonur Jóns Hjaltalíns landlæknis.
9 Malarhjallar.
10 Þessi bær er ávallt nefndur Litla-Fjarðarhorn.
11 Þetta er flikrubergslag (ignimbrít) sem myndast í miklum gosum og skríður askan
eldheit með jörðinni eins og vatn. Í þessu lagi finnast einnig gabbróhnyðlingar.
12 Þ.e. færsla samhliða göngunum. Hér er verið að lýsa misgengi.
13 Gangarnir, sem hér eru nefndir, eru vafalaust Karlinn og Kerlingin í Drangavík
innan við Kollafjarðarnes.
14 Halianthus peploides nefnist nú Honckenya peploides, ‘fjöruarfi’.
15 Beitukóngur.
16 Purpura lapillus nefnist nú Thais lapillus, ‘nákuðungur’.
17 Þangdoppa.
18 Líklega er hér átt við klettadoppu. Núverandi latneskt nafn er Littorina saxatilis.
Í Andvara grein 1904 telur Þorvaldur upp skeljarnar sem hann fann við Kolla-
fjarðarnes og þá greinir hann þetta Littorina grönlandica sem er afbrigði af Lit-
torina saxatilis.