Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 72
72
15. ágúst. Fór um morguninn kl. 11 á stað og fylgdi Eymundur
bóndi81 mér og kona hans, dóttir Torfa heitins á Kleifum. Fórum
yfir hálsinn, þar allt pólerað af ís, allar hvilftir og hólar, fram
hjá Kjalarvatni fyrst, svo hjá Bæjarvötnum sem líta út fyrir að
vera djúp. – Vatnið í Þyrilvalladal82 fyrir sunnan Stein grímsfjörð
kvað vera kringlótt og mjög djúpt, sjálfsagt 30 faðmar ef ei meir.
– Norðurbrún hálsins þverbrött ofan að Bjarnarfirði og lögin
hallast 4–5° út. Þar fögur útsjón yfir Kaldrananes en ófríkkar
er neðar dregur. Bjarnarfjörður allur grunnur með leirbotn,
átta faðmar mest út af Reykjarvík. Lögin í hálsinum hér að
sunnan við fjörðinn hallar öllum út en sums staðar sjást eins
og grasgrónar sprungur upp úr eins og það væru dislocatiónir
eða stökk (?).83 Svoleiðis sprunga sést líka upp af Reykjarvík að
norðanverðu, þar hallast lögin líka út.
Á Kaldrananesi þrjú býli, allstór bygging. Nesið þar niður af
með hamri84 framan á, víkur, sker og grandar þar í fjarðarmynninu.
Fremst í nesinu að norð an er laug rétt við fjöruna. Hér í
Kaldrananesi kemur víða upp rekadrumbar þegar stungið er í
mýri; nesið út af bænum allt fullt af skeljabrotum sem þannig
verða þó um 10–20 fet yfir sjó. Þorsteinn, einn af bændum þar,
sonur Guð brands í Hvítadal,85 reið með ásamt Eymundi inn eftir.
Hér fjarar mikið út. Við riðum vaðla að Ásmundarnesi. Áin86
allmikil er rennur eftir dalnum. Ísrákir hér við fjörðinn fegurri en
eg hefi nokkurs staðar séð. Í Ásmundarnesi laug (<31°) lítið fyrir
vestan húsið.87 Þar fyrir ofan flatir huldar eggmynduðu smáu
malargrjóti. Skildum þar eftir áburðarhestana og rið um inn að
Klúku fjórir saman, eg, Ögmundur og tveir bændur. Undirlendið
við fjarðarbotninn mjög lágt, lítið hærra en sjór, flatt og bakkar að
ánni, terrass að norðanverðu frá Ásmundarnesi allt að Klúku, þó
með afbryddur. Nálægt Ás mundarnesi á einum stað laus björg
81 Eymundur Guðbrandsson, bóndi í Bæ 1886–1914 (Jón Guðnason (1955), bls.
388); kona hans var Guðbjörg Torfadóttir alþingismanns Einarssonar.
82 Þiðriksvalladalur. Vatnið þar var ekki kringlótt heldur ílangt.
83 Misgengi og er það rétt túlkun hjá Þorvaldi.
84 Hamarinn heitir Kross.
85 Þorsteinn Guðbrandsson, bóndi í Kaldrananesi 1882–1895 (Jón Guðnason
(1955), bls. 398).
86 Bjarnarfjarðará.
87 Þessi laug er við núverandi þjóðveg, milli hans og borholu sem þar er.