Strandapósturinn - 01.06.2012, Blaðsíða 75
75
bæjarveggjum auk skarfakáls Saxifraga98
með þessi blöð: [sjá mynd]. Halli laga norðan
við víkina ca. 2–3–4° út.
Riðum upp Kaldbaksdalinn. Hann lágur
yfir sjó, mýrlendi mjög snöggt, innar eyrarrós og gulvíðir í stórum
skellum. Hroðaleg gljúfur niður í fjöllin á báða vegu, þverhnípt
eins og rennur inn í fjöllin. Mjög kuldalegt, snjóskaflar nýir niður
eftir öllu. Vatn rétt fyrir innan Kleifabæ, þar silungsveiði, Kaldbaks-
vatn, Kaldbaksá rennur í. Loftur á Eyjum99 og bóndinn á Kleifum100
fylgdu mér. Innst í dal þar sem fer að byrja botninn Önundarhaugar
tveir;101 skriður eða mórena. Undan skafli kemur kalt vatn en
neðar heitt vatn, spýtist um eitt fing urstórt op, 72°, blandast
saman heitt og kalt, laug neðar, 40° neðst 50° efst. Malarbreccia á
blágrýtinu. Innst fellur áin niður dalbotninn fossandi alla leið og
breiðir sig öll út um bergið svo hvergi er eiginlega einstakur
farvegur.102 Að norðan fellur gil103 í hana úr Norðdal sem er
fjalladalur er gengur norður í Veiðileysu allur fullur af snjósköflum.
Gengum upp klettana fyrir dalbotninum upp með ánni og
þegar kemur upp á brúnirnar að norðanverðu eru Hveratungur.104
Allt er þar nú undir snjó og bráðnað stórt hlið í voldugan skafl
þar sem laugarnar eru efst. Spýtist þar heitt (72°) vatn um op í
klettunum sem rétt er svo að má reka fingur í.105 Rennur kalt vatn
frá skaflinum í hið efra, neðar myndast pollur með volgu vatni
sem var 50° á yfirborði en 40° undir. Rennur svo lækur106 frá langt
niður eftir niður í ána. Neðar sá eg tvö op með heitu vatni, um
70°. Fram með læknum mikill gróður innan um snjóinn eða þó
heldur rétt við hann, kafgresi, blágresi, burkn ar, Bartsia,107 fáeinar
hvannir etc. etc. Upp af dalnum drög nú öll snæþakin inn til
98 Steinbrjótur. Teikningin af blaðinu bendir til að þetta sé Saxifraga cernua eða
laukastein brjótur.
99 Loftur Bjarnason, bóndi á Eyjum 1858–1899 (Jón Guðnason (1955), bls. 432).
100 Jón Pálsson var bóndi á Kleifum 1849–1898 (Jón Guðnason (1955), bls. 435).
101 Nefnast einnig Tréfótshaugur. Þar á Önundur tréfótur, landnámsmaður í Kald-
baksvík, að vera heygður.
102 Þarna heita Fossar og er þessu rétt lýst hjá Þorvaldi.
103 Norðgil.
104 Hveratungur eru milli Norðdals og Kaldbaksár.
105 Hæstur hiti hefur mælst þarna 74,5° C. Hver þessi nefnist einfaldlega Hver(inn).
106 Nefnist Hveralækur.
107 Bartsia alpina, ‘smjörgras’.