Strandapósturinn - 01.06.2012, Blaðsíða 86
86
hafði grafið í hálsi og tungurótum og ætlaði stundum að kæfa
hana en batnaði helst við það að karl hellti ofan í hana steinolíu.
Þegar farið er til kirkju verður að fara einum og hálfum degi á
undan og úr Skjaldabjarnarvík er farið einu sinni á sumri og
ganga ca. fjórir dagar til ferðarinnar. – Fengum kaffi um kvöldið
og mjólk og sváfum í skemmunni.
22. ágúst. Gott veður um morguninn, slær hvítleitum bjarma á
himin og sjó í austrinu. Ekki sagði bóndi að galdramenn væru
hér lengur, en að þeir hefðu gert margt mein hér áður en fyrir
ekki löngu væru þeir seinustu dánir.
Suðursporður Drangajökuls kvað ei ganga nema lítið eitt
sunnar en Drang ar og kvað vera heil dagleið frá enda hans suður
á Steingrímsfjarðarheiði. Veg ur úr Ófeigsfirði yfir í Hraundal186
liggur fyrir sunnan hann. Vegur liggur úr Drangavík út með urð
og skriður um Drangaskörð. Er þá farið ysta skarðið187 og er þetta
mjög vondur vegur. – Á Dröngum fást í meðalári 70 pund af dún;
þar er líka vatnsmylla. – Þegar fyrir skömmu er komið ofan af
Drangahálsi er malargrjótskambur, þó ei mikill né hátt yfir sjó.
Fyrir innan bæinn nokkuð ægi sandur hvítur í börðum lítið yfir
sæ.188 Í bökkunum fyrir ofan fjöruna kemur fram bæði viður og
hvalbein. – Inn með Eyvindarfirði að sunnan heita Básar. Hvalá
kemur sjálf úr jökli, Drífandi (hér kallað Rjúkandi)189 að sunnan.
Hér það almenn trú að selja sé hættuleg í skip og líka eik.
Kerlingin hér, kona Péturs, komst svo að orði um skip, sem hér
fórst fyrir nokkru,190 „að það mundi ekki hafa verið spöruð í það
blóðeikin“. Í morgun spurði hún Ögmund hvert við hefðum
orðið nokkurs varir (við sváfum í skemmu). Ögmundur spyr hvert
menn yrðu nokkurs varir. „Ójá, menn verða varir við slæðinga og
ótukt úr sjónum fyrir garða,191 einkum síðan jagtin strandaði um
árið og mennirnir fórust.“
186 Nefnist Ófeigsfjarðarheiði.
187 Gengin Signýjargata um Signýjargötuskarð.
188 Hér er Þorvaldur að lýsa víkinni utan við Reyðarhlein á Dröngum. Víkin hefur
ekkert sér stakt nafn en fjaran nefnist Sandurinn.
189 Áin nefnist Rjúkandi og rennur í Hvalá. Í henni er Rjúkandisfoss.
190 Líklega er hér átt við þegar skipið Anna Emilie strandaði 1866 undir Drangahlíð
og fimm af níu skipverjum fórust; sjá Guðmundur G. Jónsson (1988).
191 Garður þýðir hér stórviðri.