Strandapósturinn - 01.06.2012, Qupperneq 92
92
og snjórönd kringum alla tjaldskör ina. Þetta var slæmt strik í
reikninginn, nú er ekkert hægt að gera.
Kl. 12 gengum við upp að jökli, var þá þoka nokkur og smá-
rigning. Kringum tjaldið eintómir pollar. – Fyrir ofan mórenuna
slétta af eintómum hnullungum og rennur áin eftir miðjunni, þó
nær syðra fjallinu. Sá hóll af enda mórenunni sem er fyrir sunnan
á liggur meir til vesturs en hinir og enn miklu framar, vestar, er
enn þá einn hóll heyrandi til sama bogans. Með suðurhliðinni
sést hér og hvar votta fyrir mórenuhrúgaldri. Við gengum að
norðanverðu. Þar er í beina stefnu frá vestasta hólnum 1500
meter upp að jökli. Áin hefir dálítið breytt farveg sínum og sjást
farvegir í bugðum eftir hana um malarsandana og leir á milli.
Fram með allri norðurhlíðinni eru leifar af hliðarmórenu, lágir
hólar í görðum og þyrpingum, og á milli hólanna eru bollar og
skálar komnar við það að ísinn þiðnaði innan í. Gróður er hér
nærri enginn. Einstaka Salix herbacea og smáar tegundir af
Epilobium.225 Hér og hvar stóreflis björg, laus, afrennd á köntum,
hörð, úr porfyritiskum steini.226 Víða er á þessum eyrum rautt
gjall og grárauð og gulleit breccia dottin í sundur.
Jökulendinn allur sprunginn sundur og í sprungunum má sjá
eintómar aur rákir í ísnum og alls staðar drýpur aur niður með
vatninu. Hitinn í ánni rétt fyrir neðan þar sem hún kom út úr
jökulportinu var aðeins ÷ 0,8 en lofthitinn + 2° C. Gekk dálítið
upp í hlíðina að norðanverðu. Þar liggja allavega tildruð stór
björg og með ágætum ísrákum og núin allt í kring. Sum eru
nýlega dottin niður úr hlíðinni og í þeim kvars, scolesit og
apophyllit.227 Það er auðséð að jökullinn hefir verið áður, þegar
hann náði fram að mórenunni, ca. 100 [meter] hærra en fremsti
sporðurinn er nú. Þar sem jökullinn kemur niður í dalbotninn er
hann einn til einn og hálfur kilometer á breidd. Nýi snjórinn
ofan á er að sjá eins og rjómi ofan á bláleitri undanrenningu.
Fyrir ofan enda jökulsins að norðanverðu eru klappir í klettunum,
ca. 50 meter yfir hann, allar ísnúnar þar sem ísinn hefir orðið
fyrir mótstöðu. Á söndunum eru sums staðar stór björg með
smærra grjóti við „læsiden“,228 „cragtails“.
225 Dúnurt en af henni eru nokkrar tegundir.
226 Dílótt basalt.
227 Skólesít og appófilít eru geislasteinategundir.
228 Hlémegin.