Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 100

Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 100
100 Barðsvík, töluvert undir lendi, botnmyndað, allur grænn botninn og mjög grösugt upp hlíðarnar. Báðar þessar víkur, Bolungarvík og Barðsvík, botnar stórir en eru sumpart fylltar hið neðra af sævarburði enda eru ósar eða tjarnir fyrir ofan í báðum. Fjall261 tekur við fyrir norðan þessa vík eigi eins hátt og hitt, hjalli á hjalla ofan, forir og mýrlendi neðan, urðarhjallar hið efra. Fórum gegnum grunnt skarð262 niður í Smiðjuvík. Það er grynnri botn en hinir og hamrar niður að sjónum fyrir neðan bæinn, björg fyrir utan og innan og margir fossar niður bjargið. Fátæklegur bær og óþrifalegur. Þar kom til okkar annar bóndinn, Guð mundur,263 og sagðist undir eins hafa haldið að hér væri Þorvaldur Thoroddsen því aðrir kæmu eigi á útkjálka með svo marga hesta. Hann hafði lesið And vara264 og var mjög inter- esseraður, karlinn. Þar sá eg þrúgur, sviga með riðnum ólum í, sem menn ganga með á vetrum. Hér um pláss eru á bæjum ei til nema einn til tveir hestar og ætla þeir að verða vitlausir af kátínu þegar mínir hestar koma, verða fegnir „selskapnum“, leiðist einveran eins og mönnunum og vilja elta. Hér skildi Bæringur við oss. Við riðum upp á Smiðjuvíkurbjarg og út með brúnunum. Var þá allbrúkandi veður þó dimma væri og kafald á hærri toppum. Bjarginu hallar inn og eru þar tjarnir. Við eina tjörnina fengum við okkur bita því í morgun gátum við ekkert etið af því sem við fengum í Bolungarvík. Í gærmorgun fengum við alls ekkert er við fórum frá Reykjarfirði og óetandi harsl um kvöldið í Bolungarvík en við erum rétt orðnir nestislausir og ólifandi í tjaldi í þessum illviðrum. Göturnar á Smiðjuvíkurbjargi víða mjög tæpar og hætta að fara þar með hestana. Nú er hér fugl- laust nema einstaka ryta sést og máfur. Leiðin liggur utarlega um Drífandadal.265 Það er hvolf niður í bjargið og foss neðst hár266 og mikill í ánni.267 Þar fyrir utan enn ein dalskvompa, Hólka bætur, 261 Nefnist Smiðjuvíkurháls. 262 Þorvaldur fer Smiðjuvíkurháls. 263 Guðmundur Ólafsson, bóndi í Smiðjuvík um 1870 og 1884–1894. Hinn bóndinn hét Magn ús Jóhannesson, frá því fyrir 1883 og til 1887. Húsmaður þar er þá fyrr- greindur Eyjólfur Guð mundsson. (Lýður Björnsson (1992), bls. 77). 264 Þorvaldur Thoroddsen birti greinar um ferðir sínar reglulega í tímaritinu And- vara. 265 Drífandisdalur. 266 Drífandi eða Drífandisfoss. 267 Drífandisá.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Strandapósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.