Strandapósturinn - 01.06.2012, Qupperneq 101
101
áður maður kemur að Bjarnarnesi.268 Á stöllunum í bjarginu sums
staðar gróður og oft standar í sjó fyrir utan.
Bjarnarnes er hamratangi út í sjóinn undan lægð eða dal,
Hrollaugsvíkur dal, sem hér verður sunnan við Axarfjall. Þar er
urð við sjóinn og illt að setja skip, undarlega afskekkt, bjarg við
hlið, snjófjöll og öræfi fyrir ofan, engin byggð nærri, íshaf fyrir
utan og brimlöðrið við bjargtangann, hafís og fugla garg. Drukkum
þar kaffi, sykur, kerling tók til, bóndi beit. – Bóndinn, Jón
Guðmundsson,269 búinn að vera hér þrettán ár, leiðist þó lífið
fremur, einkum í þessum harðindum, vel greindur og hefir lesið
margt, kvartar undan eintrján ingsskap manna og samtakaleysi.
Örfáir fá hér um slóðir blöð og bækur og það kemur seint sem
fæst.
Bóndi fylgdi oss og gerði það ágætlega, valdi veginn mjög vel.
Riðum yfir lækinn270 og dalinn og sneiddum oss út og upp
Axarfjallið. Þegar upp dró var alls staðar mikill nýr snjór og hér er
að sjá yfir landið eins og um hávetur. Komum niður í Látravík. Þar
er nýbýli.271 Það er botnskvompa með nokkru grasi og mýra- og
dýjaflesjum upp eftir. Riðum ofarlega í botninum. Hér er hátt
niður að sjó og verður að hafa stiga til þess að komast niður.272
Hefir bónd inn haft þar bát fyrir neðan en hefir misst hvern eftir
annan. Hér er eitthvert einmanalegasta kot sem eg man til eg hafi
séð. Riðum svo upp bjargbrúnirnar sem hækka mikið út og upp
frá Látravík. Þar fyrir ofan Látravík rétt á bjarg brún eru rústir af
268 Nú yfirleitt skrifað þannig; í dagbókinni skrifar Þorvaldur oftast ‘Bjarnanes’,
aðeins einu sinni ‘Bjarnarnes’.
269 Jón Guðmundsson, bóndi og húsmaður í Bjarnarnesi 1880–1888 (Lýður Björns-
son (1992), bls. 76 og 237–238). Ef rétt er frá greint hjá Þorvaldi hefur hann
verið búinn að dvelja í Bjarn arnesi frá um 1873. Þess ber að geta að kirkjubækur
Staðarsóknar í Grunnavíkurhreppi frá þessum tíma brunnu og því eru ábúen-
datöl götótt. Gekk undir nafninu Jón brúðgumi. Hann er samkvæmt bókum á
milli kvenna árin 1885 til 1897. En hann átti tvö börn (f. 1880 og 1889) með
Ólafíu Jóhannesdóttur og er Ólafía skráð í Bjarnarnesi 1887 (Lýður Björnsson
(1992), bls. 285). Sennilega er Ólafía kerlingin sem tók til sykurinn.
270 Hrollaugsvíkurá.
271 Þar bjó Jóhann Halldórsson refaskytta 1873–1901 (Lýður Björnsson (1992), bls.
74). Látra vík var mæld út fyrir hann og upphaf búsetu þar er 1873. Áður var
Látravík almenningur.
272 Heitir Lendingarbás og þar var traustur tréstigi ofan bakkann og niður í fjöru.