Strandapósturinn - 01.06.2012, Blaðsíða 102
102
nýbýli sem nýlega er aftur komið í eyði.273 Veðrið hvasst, kafald og
hagl, hiti ÷ 1, snjór í kálfa og varð alltaf meiri er ofar dró svo loks
voru hestarnir á kviði í nýföllnum snjó. Urðum við nærri allt að
ganga og vaða ófærðina mest af veginum frá Bjarnarnesi að
Horni.
Hér á bjargbrúninni eitthvað hið hrikalegasta og ljótasta sem
eg hefi séð. Við erum að fikra okkur fram með brúninni vaðandi
snjóinn og berjandi hest ana í veðrið, þverhnípt hyldýpið, 1000
feta hamraveggir, á aðra hönd niður í sjó, fyrir ofan á vinstri hönd
þýtur stormurinn og kafaldið um háar hamrabrúnir og eggjar274
sem grillir í einstaka sinnum, fyrir neðan hamrastandar275 úr sjón-
um og löðrandi brim sem þó ekki heyrist í vegna hæðarinnar og
stormsins, ein staka fugl við brúnirnar að baksast á móti vindinum,
en í suðri grillir í sífelldar hamragirðingar að sjónum og glórir í
undarlega óhreina birtu við sjóinn og klettana fyrir neðan kolsvört
kafaldsskýin. Klöngruðumst við svo gegnum Al menningaskarð
niður dalbotn276 snjói þakinn og mýrar að Horni. Var þá orðið
dimmt kl. 10 og illviðrið sama. Fólk var háttað. Við fengum að
vera í skemmu um nóttina. Okkur er bæði kalt og við ver til reika
en við höfum verið á nokkru ferðadrasli áður.
Þegar rigningatíð er hrapar svo mikið úr bjarginu að fuglinn
drepst hrönn um. Fæst þá oft eins mikið af rotuðum fugli eins og
hinsveginn lifandi í snörur. Drangar við bjargið hjá Látravík heita
Brýni og Fjalir utar. Víkur þessar heyra allar undir Grunnavík.277
Prestur kemur í húsvitjun oftast einu sinni á ári og fer allt
gangandi, eins í Aðalvíkursókn því þar eru engvir hestavegir til að
Höfn og Horni.
27. ágúst. Sami kuldinn, þoka, bleytuslettingur, snjór til fjalla.
Stígur278 segist í þau 30 ár sem hann hefir verið hér ei muna
273 Býli þetta nefndist Tóftir. Þar bjó síðast og líklega sá eini á 19. öld Elías Einarsson.
Hann fór þaðan 1883 og bjó síðan á Horni. Sagt er að Elías hafi búið á Tóftunum
í fimm ár og vegn að vel.
274 Hér á Þorvaldur við Dögundarfell sem svo er nefnt af heimamönnum en oft sést
á prenti Dögunarfell.
275 Fjalirnar og Forvaðann undir innsta hluta Hornbjargs.
276 Innstadal.
277 Sókna- og hreppamörk eru um Almenningaskarð.
278 Stígur gamli Stígsson, bóndi á Horni 1856–1899 (Kristinn Kristmundsson og Þór-
leifur Bjarnason (1971), bls. 26).