Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 103
103
jafnvont sumar, þurrt veður hefir varla verið hér í tvo til þrjá
daga í sumar. Mér er ómögulegt að fara hér suður um Jökulfirði
því þó eg gæti farið Hafnarfjall,279 sem nú er alveg ófært af snjó-
um, þá er ei hægt að komast með hest kringum Jökulfirði. Fyrir
viku var kvið snjór á Hafnarfjalli og mikið hefir bæst við síðan.
Bjargið byrjar við Hornklett, þar upp af Núpur, svo Ystidalur,
svo Miðfell, Miðdalur og Innstidalur sem við fórum ofan.
Kálfatindar milli Miðdals og Innstadals, svo í Innstadal Eilífstindur,
Harðviðrisgjá, svo Skófnaberg, nær að Almenningaskarði eða
Sigmundarhjalla,280 þá Stórabrekka, neðar Litlabrekka. Í rönd
Kálfatinda að norðan heitir standur Jörundur en sunnan við
Kálfatinda Gíslamiðarhögg.281 Grasfles heitir Sleppi norðvestan
við Látravík, þar endar Hornbjarg. Svo austur með Axarbjarg,
Bæjarbjarg austan til við Bjarnarnes, svo Hólkabætur, Digranes
þar við sjóinn milli Hólkabóta og Drífandisbjargs, fyrir austan
Drífandisfoss Smiðjuvíkurbjarg að Smiðjuvík, að Bunulæk fyrir
norðan bæinn þar sem við riðum yfir. Djúpavík spöl fyrir innan
Smiðjuvík, þá Hvannakrar,282 þá Barði,283 þar fram af Barðs-
víkursker. Við Hornbjarg niður af Miðdal Miðdalssandur, möl
undir bjarginu; tangi fyrir austan þessa möl heitir Örfiður, svo
Malarstrengur, svo Mellönd, svo Rani undir Kálfatindum,
Hólmsbót undir Innstadal, svo Hólmur sem hún dregur nafn af,
frálaus hólmi, svo Forvaðabót austan við Hólminn, liggur austur
að skeri sem heitir Forvaði eða Forvoði. Fjalabót284 undir
Sigmundarhjalla, Fjalir fyrir utan. Í Látravík Brýni.285
Leitað til Hornbjargs allt sunnan úr Víkursveit286 og úr
Grunnavík því bjargið er almenningur, lítið úr Aðalvík því þeir
sækja meira að Heljarvíkur bjargi.287 Byrjað að síga í áttundu til
níundu viku og hætt í 15. viku. Fuglar hér svartfugl, langvía,
279 Þegar landleiðin var farin úr Hornvík var farið Hafnarskarð, sem er í Hafnarfjalli,
og komið ofan í botninn á Veiðileysufirði.
280 Sigmundarhjalli er austan Almenningaskarðs.
281 Gíslamiðarhögg er stallur í austurbrún Kálfatinda.
282 Hvannakrar eru austan megin í Smiðjuvík og í Barðanum. Þar var hvannatekja.
283 Barð er núpurinn yst á Smiðjuvíkurhálsi.
284 Fjalabót er við Fjalirnar utanverðar.
285 Brýni er áberandi ílangt klettasker vestan til í Látravík.
286 Víkursveit er Árneshreppur og var það nafn fyrrum meira notað.
287 Eldra nafn á Hælavíkurbjargi.