Strandapósturinn - 01.06.2012, Side 104
104
nefskera,288 hringvía, ryta, álka, lundi, fýlungur = skrofa,289 svart-
bakur, máfar. Svartbakar eta eggin, tófa gerir mikinn skaða,
hrafnar eta egg. Arnir290 og fálkar fáir. Svartfuglinn alfarinn í 18.
viku, lundinn farinn í 18., kofa er ei tekin, er varla ekkert.
Rytuungar stundum teknir, mjög óvíða teljandi. Hér sigið að
morgni til náttmála291 – snýr öðruvísi en Látrabjarg; sex til átta
gæta festar, eins farið og í Látrabjargi. Brugðið bandi úr festi.
Festar auga er kallað það að endi festarinnar er riðinn svo að
smokka má fótum niður í og riðið undir sitjandann og axlabönd
í kross að framan og aftan. Þegar egg eru tekin eru menn í pilsi
eins og kvenmenn girt upp undir höndum. Það heitir hvippa. Á
því axlabönd, í það komast um 200 egg, faldurinn brotinn upp og
bundið aftur um mittið, opið að framan og þar eggin látin í.
Stengur með skíði og snara úr tág, sex til sjö álna langar; níu til
tíu álna stangir hafa sumir er fara og snara með brún. Mesta sig
70–80 faðma áður meir en nú geta menn gengið lengra og síga af
hillum. Dyraskörð milli Jörundar og Kálfatinda. Þar oft sigið
loftsig, 50 faðma hér um bil. Líkt í Hrómundahvöpp292 undir
Miðdal. Hér eins leynivaður293 eins og í Látrabjargi. Áður brúkaðar
ólarfestar úr besta nauts skinni fer- eða fimmfaldar, mjög dýrar, nú
aðeins kaðalfestar. Í bjarginu basalt og móberg rautt á milli.
Stundum gengið neðan294 líkt og í Látrabjargi. – Fjal irnar í
bjarginu gangar. Kór við sjó undir Núpnum.295
Í Heljarvíkurbjargi, sem hingað snýr, heitir Heiðnabjarg.296 Var
þar fyrst sigið fyrir rúmum 30 árum og var þar ókjör af fugli og svo
spakur að þar mátti ná honum með lítilli stöng og gjöreyða
hillurnar. Básinn þar upp af heitir Festarskörð.297 Úr Festarskörðum
sigið fertugt sig í hillu298 og gengið eftir henni langt út bjargið og
288 Stuttnefja.
289 Fýll.
290 Hér er nafnið örn í kvenkyni eins og fyrrum var á Vestfjörðum og um Breiðafjörð.
291 Náttmál eru kl. 9 að kvöldi.
292 Hrómundarhvöpp. Hvapp er dæld eða slakki. Í bjarginu er það stuttur þræðings-
bútur og get ur verið afsleppur.
293 Leynivaður er aukastrengur sem sigmaður heldur í og er laus frá sjálfum sig-
vaðnum.
294 Hér virðist Þorvaldur nota vestfirska merkingu orðsins neðan sem er að fara upp.
295 Er austan við Hornklett.
296 Heiðnabjarg er undir Festarskörðum innst í Hælavíkurbjargi.
297 Festarskörð er lítil, bogmynduð, grunn hvilft efst í Hælavíkurbjargi innst.
298 Festarskarðshilla.