Strandapósturinn - 01.06.2012, Síða 114
114
núnu smágrjóti og hafa árnar brotist gegnum. Kl. 2 áðum við á
Gálmaströnd lítið fyrir innan Kollafjarðarnes. – Fundist timbur
ofarlega í túni á Broddanesi og hvalshaus uppi á Skálholts-
víkurdal. – Í byrjun júlí í fyrra var fjarskalegur bylur norður
um og varð úti stúlka í Goðdal346 sem var að leita að kindum á
dalnum skammt frá bænum. – Reið inn með Kollafirði og að
Fjarðarhorni347 og þar upp á Bitruháls. Sagði maður okkur á
Fjarðarhorni að óslitin glögg gata lægi yfir hann.
6. september. Fórum kl. 12 frá Broddanesi og út fyrir nesið
fram hjá Brodda á.348 Þar fyrir utan í klöppunum brimbarið
grjót nokkuð fyrir ofan sjó og líkindi fyrir abrasions-terrass rúm
100 fet yfir sjó. Yst á nesinu hrikaleg náttúra, kletta klungur og
stórkostlegir gangar, einn þeirra er nær upp úr fjalli og vatn
hefir et ið sig niður með er í stórum pörtum er ganga niður
í sjó og heita það Broddar. Uppi í klettasyllunum efra mjög
óregluleg klungur, sundur etin basaltlög með toppum og gangur
uppstandandi.
Klif349 suður af Broddunum, sem áður var varla gengt á syllu350
og snæri til að halda sér í, nú góður vegur lagður, sprengt úr
klettunum. Hlíðin inn af ein tóm urð, þó ruddur góður vegur,
heitir Skriða.351 Þenna veg nýfarið að nota, áður illur vegur yfir
hálsinn. Enn innar ganghlein stór, Kýrhamar, lækjar buna352
steypist fram af syðri hluta hans og er sagt vígður af Gvendi góða.
Austari (ytri) hluti klettsins er þurr. Hönd og höfuð óvættarins
kom út og sagði: „Hættu að vígja, herra, einhvers staðar verða
vondir að vera.“
346 Hún hét María Eyjólfsdóttir og varð hún úti heima við bæ 7. júlí 1885, fimmtug
að aldri. Frásögn er af þessum atburði í Strandapóstinum (Jóhannes Jónsson
(1985), bls. 32–35).
347 Hér er átt við Stóra-Fjarðarhorn.
348 Broddadalsá sem er bæði áin og bærinn sem við hana stendur.
349 Líklega er átt við Stigaklett sem er austan við Stigavík.
350 Hún heitir einfaldlega Sylla.
351 Hún heitir í dag Urð eða Tólfmannaurð og var sagt að þar hefðu tólf menn farist
í skriðu hlaupi í fornöld.
352 Lækurinn heitir Kýrhamarslækur.