Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 46

Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 46
46 Klas Grinell skynsemi á menningarsvæði múslíma. Oft hefur verið fjallað um þennan íslamska kapítula sem eins konar hvíldartíma þegar vestræn skynsemi lá óhreyfð til varð- veislu áður en hún sneri aftur heim til sín og endurheimti lífsþrótt sinn og dug. Í þessari grein verður skoðað hvernig fjallað hefur verið og er nú á dögum fjallað um íslamska heimspeki innan vestrænnar hugmyndasögu. Hvaða mælikvörðum er fylgt í heimspekilegum og hugmyndasögulegum yfirlitsritum? Er umfjöllunar- efni þeirra valið eftir yfirlýstum mælikvörðum eða skipta þar einhverjar duldar forsendur máli? Þessar spurningar kalla á aðrar og veigameiri á borð við: Hvaða stöðu hefur íslömsk heimspeki innan vestrænnar hugmyndasögu? Ætti að rita söguna fram á við eða aftur á bak? Hvernig hafa þau sjónarhorn sem urðu fyrir valinu mótað stöðu íslamskrar heimspeki í sögunni? Allar þessar spurningar mætast í eftirfarandi spurningu: Af hverju er ekkert fjallað um 12. aldar heim- spekinginn Suhrawardi í yfirlitsritum um hugmyndasögu? Suhrawardi og heimspeki hans Íranski heimspekingurinn Hamidreza Ayatollahy (f. 1959) heldur því fram að þeir múslímsku heimspekingar sem fjallað sé um í vestrænum heimspekisöguritum hafi starfað innan hefðar fornaldarheimspeki. Aftur á móti hafi Suhrawardi orðið fyrstur til þess að ná að fella þá hefð algerlega að meginspurningum íslamstrúar. Hann sé upphafsmaður mikilvægustu hefðarinnar innan íslamskrar heimspeki, en hún hafi náð hátindi sínum á 17. öld með heimspekingnum Sadr al-Din al- Shirazi, sem er einnig þekktur sem Mulla Sadra (1572–1640).3 Heimspeki Suhrawardis markar þannig upphafið að vel útfærðri trúarlegri og dulspekilegri heimspekihefð innan íslams. Í henni gegni opinberanir, persónu- legur innblástur og dulræn reynsla mjög veigamiklu heimspekilegu hlutverki, sem veldur því að hún sprengir ramma þeirrar skynsemishyggju sem aristótelísk heimspeki hafði haldið sig innan. Áhrif Suhrawardis urðu feikileg. Endurmótun hans á heimspekinni á platonskari grunni átti ekki aðeins eftir að verða ráðandi innan íslamskrar heimspeki síðar meir heldur einnig setja svip sinn á gyðinglega dulspeki.4 Ein mikilvægasta hugmyndin í heimspekikerfi Suhrawardis er sú að öðlast megi „þekkingu með nærveru“ (al-ilm al-huduri). Að vita eitthvað er að hafa reynslu af því; öll þekking krefst einhvers konar beinna tengsla milli þess sem veit og hins þekkta. Að dómi Suhrawardis getum við ekki greint heiminn með rökleg- um hætti fyrr en eftir að við höfum öðlast innsæisreynslu af umhverfi okkar. Þar af leiðir að andstætt því sem boðað er innan hinnar ráðandi aristótelísku hefðar dugir tæmandi skilgreining á hlut ekki til þess að við öðlumst þekkingu á honum. 3 Hamidreza Ayatollahy, „The Iranian philosophical trend in its present and past culture“, Divinatio, 24 (2006). 4 Hossein Ziai, Knowledge and Illumination: A study of Suhrawardi’s Hikmat al-Ishraq, Brown Judaic Studies (Atlanta: Scholars Press, 1990), 1 o.áfr. Meðal harðra gagnrýnenda þeirrar hefðar sem Suhrawardi er fulltrúi fyrir má nefna marokkóska samtímaheimspekinginn Abed al-Jabri. Þó bendir hann á hversu miklu máli Suhrawardi hafi skipt. Mohammed Abed al-Jabri, Arab-Islamic philosophy: A contemporary critique (University of Texas Press: Austin, 1999 [1994]), 58. Hugur 2019-Overrides.indd 46 21-Oct-19 10:47:03
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.