Hugur - 01.01.2019, Síða 53

Hugur - 01.01.2019, Síða 53
 Íslömsk heimspeki og vestræn hugmyndasaga 53 um er átt við með hugmyndasögu í Svíþjóð mun ég birta nokkrar skilgreiningar frá ólíkum fræðasetrum á því sem gengur ýmist undir nafninu hugmyndasaga eða hugmynda- og lærdómssaga. Hugmynda- og lærdómssögustofnunin við Uppsalaháskóla kynnir viðfangsefni sitt þannig að það varði „sögu hugmynda, vísinda og heimsmynda“ sem og eftir- farandi spurningar: „Hvaða skilning hefur maðurinn lagt í sjálfan sig og umhverfi sitt? Hvað er réttlæti? Hvernig á að lifa góðu lífi? Hver er grunnur þekkingar- innar?“28 Við Háskólann í Umeå segir: „Hugmyndasaga er saga þeirra vanga- veltna og hugmynda sem fólk hefur gert sér um náttúruna, samfélagið og hið yfirskilvitlega.“29 Í Gautaborg er okkur sagt að hugmynda- og vísindasaga beinist að því „hvaða augum menn hafa á ólíkum tímum, allt frá fornöld, séð sjálfa sig og hvernig þeir hafa sett fram hugmyndir um heiminn og mannveruna, náttúru og menningu, samfélag og stjórnmál, þekkingu og fagurfræði, vísindi og tækni o.s.frv.“30 Hvað Háskólann í Lundi varðar, þá segir þar um grunnnámskeiðið í faginu: „Hugmynda- og lærdómssaga snýst um sögu hugmynda og vísinda frá fornöld til samtímans. Reynt er að ná utan um heimsmyndir ólíkra tímaskeiða og þjóð- félagshópa, og hvað er einkennandi fyrir viðkomandi skeið og menningu. Þú munt kljást við spurningar sem varða skilning okkar á Guði, Náttúrunni, Manninum, Samfélaginu og Sögunni.“31 Loks er við Stokkhólmsháskóla nánar tilgreint að viðfangsefnið taki til „náttúruheimspeki Forn-Grikkja, spanni útbreiðslu kristn- innar, kynni menntaheim miðalda og kanni bæði endurreisnina og landvinninga vísindabyltingarinnar til að skoða hvernig hugmyndir okkar um manninn og heiminn þróast. Og ævintýrinu lýkur ekki fyrr en löngu eftir sigurför iðnvæð- ingarinnar og tilkomu póstmódernismans.“32 Þeir sem beint eða óbeint afmarka viðfangsefnið við ákveðinn heimshluta virð- ast halda því fram að það hverfist um þróun vestrænnar menningar. En hvað eru þá Vesturlönd? Eins og ljóst er af skilgreiningunum hér á undan eru menn sammála um að vestræn menning hefjist með Forn-Grikkjum. Því er að sjá sem samhljómur ríki um að grunnnámskeið í hugmyndasögu eigi að lýsa leiðinni frá Forn-Grikkjum til okkar (póst)módernísku sænsku samtíðar. Veigamikill hluti þessarar hugmyndasögu er saga heimspekilegrar hugsunar, eins og verður ekki síst ljóst af námsefninu við þessi ólíku fræðasetur. 28 [Uppsala universitet: Institutionen för idé- och lärdomshistoria] Sótt 6. febrúar 2008 af http:// www.idehist.uu.se/ 29 [Umeå universitet: Idéhistoria] Sótt 6. febrúar 2008 af http://www.umu.se/histstud/presentation/ idehistoria.html 30 Kurser grundnivå, Göteborgs universitet, 2008, 57. Sótt 6. febrúar 2008 af http://www.utbildning. gu.se/utbildning/varautbildningar/utbildningskatalog/ 31 [Lunds universitet: Idé- och lärdomshistoria] Sótt 6. febrúar 2008 af http://www.kult.lu.se/ utbildningar/ide--och-laerdomshistoria/grundkurs-30-hp 32 [Stockholms universitet: Idéhistoria] Sótt 6. febrúar 2008 af http://www.idehist.su.se/ omidehistoria.html Hugur 2019-Overrides.indd 53 21-Oct-19 10:47:04
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.