Hugur - 01.01.2019, Side 113

Hugur - 01.01.2019, Side 113
 Við flóttafólk 113 stríðstímum vegna þess að þeir eru góðir föðurlandsvinir? Vegna viðleitni þeirra til þess að bjarga tölfræðilegu lífi gyðinga vitum við að sjálfsvígstíðni gyðinga var lægst allra siðaðra þjóða. Ég er viss um að þessar tölur eru ekki lengur réttar, en ég get ekki sannað það með nýjum tölum, þótt ég geti það vissulega með nýrri reynslu. Það gæti nægt þeim efasemdasálum sem voru aldrei fyllilega sannfærðar um að mælingar á höfuðkúpum gætu sagt nákvæmlega til um innihald þeirra, eða að glæpatíðni geri siðferðisstigi þjóðar góð skil. Alla vega, hvar svo sem evrópskir gyðingar búa í dag, fer hegðun þeirra ekki lengur eftir tölfræðilegum lögmál- um. Sjálfsvíg eiga sér ekki bara stað á meðal óttasleginna gyðinga í Berlín og Vín, í Búkarest og París, heldur í New York og Los Angeles, í Búenos Aíres og Montevídeó. Aftur á móti hefur lítið verið sagt frá sjálfsvígum í gettóunum og fangabúðun- um sjálfum. Vissulega er fátt um frásagnir frá Póllandi, en við erum nokkuð vel upplýst um fangabúðirnar í Þýskalandi og Frakklandi. Þegar ég dvaldi um stund í fangabúðunum við Gurs, heyrði ég einungis einu sinni minnst á sjálfsvíg, og var þá um að ræða tillögu að samhentri aðgerð, eins konar mótmæli til þess að ergja Frakkana. Þegar sum okkar höfðu orð á því að við hefðum hvort sem er verið send þangað „pour crever“2, fylltist andrúmsloftið af ofsafengnu hugrekki til lífs. Það var viðtekin skoðun að maður þyrfti að vera óeðlilega ófélagslyndur og afskiptalaus um málefni líðandi stundar til að geta túlkað þessa hendingu sem persónulega og einstaklingsbundna óheppni og endað líf sitt samkvæmt því á persónulegan og einstaklingsbundinn hátt. En þetta sama fólk, um leið og það sneri aftur til eigin lífs og stóð frammi fyrir að því er virtist einstaklingsbundnum vandamálum, tók enn á ný upp þessa brjálæðislegu bjart- sýni sem er næsti bær við örvæntinguna. Við erum fyrstu trúlausu gyðingarnir sem eru ofsóttir – og við erum þeir fyrstu sem svörum með sjálfsvígum, ekki einungis á ögurstundu. Kannski hafa þeir heimspekingar á réttu að standa sem segja að sjálfsvíg sé síðasta og æðsta tryggingin fyrir frelsi mannsins; verandi ófær um að móta eigið líf og skapa heiminn sem við lifum í, erum við engu að síður frjáls til þess að kasta lífinu frá okkur og yfirgefa heiminn. Guðhræddir gyðingar geta auðvitað ekki raungert þetta neikvæða frelsi: þeir sjá morð í sjálfsvígi, það er, eyðileggingu þess sem mað- urinn getur aldrei skapað, brot á rétti Skaparans. Adonai nathan veadonai lakach („Drottinn gaf, drottinn tók aftur“); og svo bæta þeir við: baruch shem adonai („sé drottins nafn lofað“). Fyrir þeim táknar sjálfsvíg, líkt og morð, guðlast og árás á sköpunarverkið í heild. Sá sem fremur sjálfsvíg fullyrðir að lífið sé ekki þess virði að lifa, og heimurinn ekki þess virði að leita skjóls í. En þau okkar sem fremja sjálfsvíg eru ekki brjálað uppreisnarfólk sem storkar lífinu og heiminum og reynir að drepa í sjálfum sér heiminn allan. Hvarf þeirra er hljóðlátt og hógvært, þau virðast biðjast afsökunar á þessari ofbeldisfullu lausn sinni á persónulegum vandamálum. Pólitískir atburðir hafa að þeirra mati ekk- ert með örlög þeirra sem einstaklinga að gera; á góðum stundum sem slæmum 2 Franska: til þess að drepast. Hugur 2019-Overrides.indd 113 21-Oct-19 10:47:08
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.