Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 122

Hugur - 01.01.2019, Blaðsíða 122
122 Antonio Casado da Rocha rætt. Eins og við munum sjá, þá getur landslagið blekkt: stundum má túlka það sem við komum auga á með margvíslegum hætti. Lítum aftur í dagbókina. 3. október árið 1859 var með meiri haustbrag og kaldari en dagarnir á undan. Í dagbókinni lýsir Thoreau því hvernig hann langaði að setj- ast niður í skjólgóðu og sólríku rjóðri. Hann hafði gengið út að Bateman-vatninu og á leið sinni til baka um gamla Carlisle-slóðann tók hann eftir bláleitum reyk sem steig upp af strompi á sveitabæ í skóginum þar sem einhver fjölskylda var eflaust að hafa til kvöldmat. „Af því sem fyrir augu göngumannsins ber er fátt jafn hugnæmt,“ skrifaði hann og gerði sér í hugarlund að þar sem reykurinn stigi upp væri allt með ljúfum heimilisbrag, svikalaust. En hann var þess líka meðvitaður að þetta var bara hugarsmíði, og að í meiri nálægð við veruleika sveitabæjarins væri ekki víst að myndin yrði jafn ljúf og sú sem göngumaðurinn gerði sér í hugarlund. Þetta leiddi Thoreau yfir í langar hugleiðingar um það hvernig við fegrum allt sem við sjáum. Þetta er hans niðurstaða: Hvers vegna heillumst við af hlutum sem við sjáum úr fjarlægð? Vegna þess að umsvifalaust og ófrávíkjanlega ímyndum við okkur að því lífi sem þar er lifað sé ekki lifað annars staðar, eða ekki þar sem við erum sjálf. Við gerum ráð fyrir að velgengni sé reglan. Við göngum ævinlega um með fullkomið dæmi í huganum. Hvers vegna finnst okkur fjarlægir dalir, hvers vegna vötn, hvers vegna fjöll úti við sjóndeildarhringinn vera falleg? Vegna þess að við áttum okkur á því eitt augnablik að þau geta verið heimili manns, og að líf þessa manns kunni að vera í samhljómi með þeim. Ætti ég að segja að við blekkjum okkur ævinlega? Við gerum ekki ráð fyrir því að þessi bóndi fari með mjólkina í samlagið. Þarna er mjólkin ekki þynnt með vatni. Við erum skilyrt til að ímynda okkur líf í samhljómi við landslagið og augnablikið. Himinninn og skýin, og sjálf jörðin, með fegurð sinni, tala sífellt til okkar og segja: Við bjóðum þér slíkt heimili, við hvetjum þig til að lifa svona og svona lífi. Þar er ekki þrúgandi fátækt og engar plagandi skuldir. Þar finnst ekki græðgi, geð- vonska, illgirni eða dónaskapur. Menn fara um og teikna, mála landslag, eða yrkja upphafin ljóð um tækifæri mannsins. Að fara inn á raunveru- legt sveitaheimili að kvöldlagi, sjá þreytta vinnumennina koma heim eftir dagsverkið hugsandi um launin sem þeir fá, subbulega húshjálpina í eldhúsinu og þvottahúsinu, afskiptalausa deyfðina og hreinan ömurleik- ann sem einungis ákafi hinna yngstu nær að hefja sig yfir – það vekur upp tilteknar hugrenningar. Að horfa á þetta þak úr fjarlægð á síðdegi í október, þegar reykurinn stígur friðsamlega til himins og sameinast skýjunum ofar – það vekur upp annars konar hugrenningar. Við höldum að við sjáum þessi ljúfu heimili og verðum orðlaus af gleði, þegar við sjáum einungis okkar eigin þök, kannski. Við erum sífellt upptekin við að finna okkur hús og jarðir og fylla þau af fólki í okkar eigin hugarheimi. Hugur 2019-Overrides.indd 122 21-Oct-19 10:47:08
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.