Hugur - 01.01.2019, Síða 137

Hugur - 01.01.2019, Síða 137
 Hvað er þöggun? 137 meira er um vert er að það sem er meint getur verið mjög fjarri því sem er sagt, ekki bara í þeim skilningi að merking orðanna sem sögð eru vanákvarði það sem mælandinn meinar, heldur einnig í þeim skilningi að það sem mælandinn segir (og meinar) er gjörsamlega fjarri því að geta ákvarðað aukmeiningu mælandans. Aukmeining (e. implicature) er hvers slags inntak sem mælandinn gefur í skyn eða ýjar að með því að segja eitthvað annað. Þetta er ólíkt vanákvörðun, að minnsta kosti að því leyti að aukmeining mælandans er einhver staðhæfing q sem ákvarð- ast af þeirri ætlun mælandans að segja p og gefa þar með í skyn q. Aukmeining kemur sér afar vel, til dæmis fyrir fólk í stjórnmálum, þegar mælandi ætlar að koma einhverjum upplýsingum til skila en vill þó, svo sennilegt megi þykja, geta þvertekið fyrir að hafa gert það. Þetta er hægt vegna þess að mælandinn veit vel að með því að segja p í ákveðnu samhengi mun viðmælandinn geta ályktað að q sé líka eitthvað sem til stendur að koma áleiðis. Tökum eitt mjög einfalt dæmi frá Grice sjálfum (1989: 32). Ef bíllinn minn stöðvast á miðri götu og ég sé þig standa nærri og segi, sýnilega í leit að aðstoð: „Bíllinn er bensínlaus!“, þá gætir þú svarað: „Það er bensínstöð handan við hornið.“ Að sjálfsögðu geri ég þá ráð fyrir, nema þú sért augljóslega ekki hjálpfús týpa, að þú teljir að bensínstöðin sé opin. Ég get ályktað sem svo að þú vitir vel að upplýsingarnar um bensínstöðina kæmu mér ekki að nokkru gagni nema hún væri opin og þar með hefðir þú enga ástæðu til að segja það sem þú sagðir. Ég kemst þannig að þeirri niðurstöðu að þú hafir einungis sagt hvar bensínstöðin væri en meint þar að auki að hún sé opin og starf- hæf. En vissulega gætir þú verið að draga dár að mér, enda einleikið að þvertaka fyrir að hafa sagt nokkuð um opnunartíma bensínstöðvarinnar: „Ég sagði aldrei að hún væri opin!“ Vert er að benda á, líkt og Maitra (2009: 327) gerir þegar hún þróar sína ætl- unarkenningu um þöggun, að fullnæging upplýsandi ætlunar er ekki nauðsynlegt skilyrði fyrir því að samskipti hafi heppnast í einstöku tilviki. Ætlunarsinnar leggja til að það að áheyrandi fullnægi samskiptaætlun mælandans sé bæði nauðsynlegt og nægjanlegt skilyrði fyrir samskiptum. Tökum sem dæmi staðhæfingu. S segir einhverja setningu og ætlar sér þar með að staðhæfa p við viðmælanda sinn, A. Þá hlýtur S að hafa einhverja upplýsandi ætlun. Kenningasmiðir deila um það hvert sé raunverulegt inntak upplýsandi ætlunar þess sem staðhæfir p; en þremur möguleikum hefur verið velt upp: (i) að A myndi sér þá skoðun að p, (ii) að A myndi sér þá skoðun að S hafi þá skoðun að p, (iii) að A leiði hugann að p. Inntak samskiptaætlunarinnar er hins vegar bara það að A beri kennsl á að S hafi tiltekna upplýsandi ætlun, hvað svo sem rétt reynist um inntak hennar sjálfrar. Þessi forspá ætlunarhyggjunnar virðist samræmast heilbrigðri skynsemi: til að skilja hvað S staðhæfir þarf A eingöngu að verða ljóst að S hafi þá ætlun að upplýsa A um það sem er staðhæft. Það er aukaskref að álykta að mælandinn segi rétt og satt frá og að þar með skuli inntaki staðhæfingarinnar bætt við í skoðanasafnið, ef það var ekki þegar til staðar. Þegar barn segir mér að Stekkjastaur hafi sett mandarínu í skóinn skil ég hvað er sagt en endurskoða líklega ekki skoðun mína á því hvort synir Grýlu og Leppalúða séu til. Snúum okkur þá aftur að þöggun. Samkvæmt ætlunarhyggju felst þöggun Hugur 2019-Overrides.indd 137 21-Oct-19 10:47:09
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.