Litli Bergþór - 01.06.2022, Page 3
Formannspistill
Íþróttastarf Ungmennafélags Biskupstungna hófst snemma í janúar og var mjög
fjölbreytt úrval í boði - loksins þegar Covid hætti að stríða okkur. Á haustönn var
hægt að halda úti eðlilegu íþróttastarfi.
Leikdeild Umf. Bisk. setti upp verkið Ef væri ég gullfiskur eftir Árna
Ibsen og var það frumsýnt 25. mars. Í fyrsta sinn í langan tíma hafði
veður ekki áhrif á mætingu og var þétt setinn bekkurinn nokkur kvöld. Það er sagt að hláturinn
lengi lífið, allavega skemmti ég mér mjög vel og hló mikið.
Nú þegar þetta er skrifað er ekki búið að halda aðalfund, en stjórn vinnur að því að útvista
ársreikningum félagsins til þess að geta skilað þeim rétt upp settum í skilakerfi ÍSÍ. Við höfum
ráðið bókara til þess að sjá um ársreikninga og kemur það til með að létta gríðarlega á þeim
sjálfboðaliðum sem starfa í deildum innan félagsins.
Þetta er að öllum líkindum minn síðasti formannspistill sem formaður Ungmennafélags
Biskupstungna, í bili að minnsta kosti. Ég hef verið heppinn að vinna með Svövu og Dagnýju í
stjórn aðaldeildar sem hafa hjálpað mér mikið í þessu starfi. Einnig þakka ég öllum öðrum sem
starfa í Ungmennafélaginu fyrir þeirra vinnu, sem öll er unnin í sjálfboðavinnu.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, enda nóg af fjölbreyttu og skemmtilegu efni til að lesa í
þessu tölublaði Litla-Bergþórs.
Með kærri kveðju,
Oddur Bjarni Bjarnason,
formaður Ungmennafélags Biskupstungna.
Ég á eftir
að sakna þín,
félagi.