Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 4

Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 4
4 Litli-Bergþór Hvað höfum við gert? Það eru ekki litlar breytingar sem hafa orðið á lífsstíl fólks síðustu 100 árin eða svo, eða bara á þeim tíma sem við sem nú lifum munum eftir eða þekkjum til. Margir af kynslóð foreldra okkar þekktu það að alast upp í torfbæjum, lífsbaráttan var hörð, fólk þurfti að lifa af landinu og því sem þar þreifst eða draga björg úr sjó á smákænum með tilheyrandi manntjóni. Matur, föt og aðrar nauðsynjar, allt var unnið í höndunum heima, slegið með orfi og ljá í 1000 ár. – Var það umhverfisvænn lífsstíll? – Varla. Landið var svo harðbýlt að kjarr og land eyddist af ágangi manna og dýra, þó íbúafjöldinn væri aðeins brot af því sem er nú. Svo kom tæknibyltingin, öll á einni mannsævi. Eftir hestavinnutæki komu dráttarvélar, bílar, vélbátar, rafmagn, internet, allskonar tæki og tól til að létta mönnum lífið. Snjalltækin öll, - hvert tækniundrið eftir annað. Lyf og framfarir í læknisfræði til að halda fólki á lífi. Fólksfjöldi á jörðinni margfaldast. Og neysluhyggjan skall á. Einhverntíman fyrir 1980 byrjaði hraðtískan. Föt og aðrar vörur urðu ódýrari vegna fjöldaframleiðslu í löndum þar sem laun voru lág. Afleiðingarnar þær að fólk, börn og fullorðnir í fátækari löndum, lendir margt í þrælavinnu neysluiðnaðarins. Vörur fluttar fram og til baka um heiminn í risa gámaskipum /-bílum með tilheyrandi kolefnisspori. Vegna þessa er ódýrara að kaupa nýja flík í búð en kaupa efnið í hana, fyrir utan tímann sem tekur að sauma eða prjóna. Þeirri vinnu var því sjálfhætt fyrir áratugum, að sauma föt á börn og fullorðna heima. – Ég man greinilega daginn sem ég uppgötvaði þetta, stödd í Vogue að kaupa mér efni í bol, einhverntíman milli 1970 og ´80. - Í okkar heimshluta er yfirþyrmandi framboð og ofgnótt af allskonar vörum í stórmörkuðum, - matur, lífstílsvörur, föt og allskonar gerfiþarfir.. Allt þarf að vera til fyrir alla svo allir geti fullnægt öllum „þörfum“ sínum og löngunum. Afgreitt í plastumbúðum , sem síðan er sett í plastburðarpoka, sem fuku út á sjó. - Þar til fréttin kom um plasteyjarnar í hafinu. Já, þvílík gegndarlaus sóun! – og það er svo stutt síðan þetta byrjaði. – Umframframleiðslu, af hvaða tagi sem er, hent. Mat, sem er kominn á síðasta söludag, hent þó nothæfur sé. Einnota fötum hent, eða „gefin“ til þróunarlanda þar sem þau hrúgast upp. - Hráefni jarðar ganga til þurrðar af því það er ekki til nóg af þeim á þessari jörð, til að framleiða of mikið af vörum fyrir of margt fólk. Og tilheyrandi mengun. Þannig hefur það gengið til síðustu 50 árin eða svo. - Og nú er enn einu sinni komið stríð í Evrópu, sem enginn veit hvar endar. Framtíðin er því óráðin í besta falli. - Ég segi nú bara eins og sumir, er ekki bara best að fara að venja sig á sjálfbæran lífsstíl og hugsa í leiðinni aðeins um loftslagsmálin? Þeir sem bera mesta ábyrgð á mengun lofts og lagar taka allavega ekki ábyrgð á henni. – Olíuiðnaðurinn hvetur okkur neytendur til að halda áfram að neyta, jú, bara kolefnisjafna bensíneyðsluna á bílinn eða flugferðina í fríið með því að gróðursetja tré. Þægilegt að varpa ábyrgðinni á neytendur. Það er allavega nokkuð ljóst að neysla og mengun heldur áfram meðan við kaupum og neytum. Hvað getum við gert? Það dæmist víst á okkur neytendur að taka í hemlana. - Nema stríðsreksturinn geri það fyrir okkur? Helst viljum við ekki hverfa 100 ár aftur í tímann, til strits og örbirgðar. Einhver millivegur hlýtur að vera til, svo við getum haldið áfram að lifa heilbrigðu lífi hér á jörðinni? Mannskepnan hefur afrekað annað eins, svo við skulum vona að hún finni út úr þessu. Finni orkugjafa sem ekki tortíma jörðinni, skrúfi niður neysluna, læri að tala saman í staðinn fyrir að berjast. – Áður en hún tortímir sér. Einhversstaðar þarf allavega að byrja til að snúa ofan af neyslusamfélagi nútímans og öll getum við gert eitthvað, þó að í litlum mæli sé. Sem betur fer hefur orðið vakning, t.d. varðandi plastnotkunina. Og vonandi uppgötva sem flestir að öll þessi neysla er hvorki holl fyrir okkur né jarðarkrílið, eða gerir okkur hamingjusamari. - Ekki heldur þá sem græða á neyslu okkar. Geirþrúður Sighvatsdóttir. Það er naumast! Ritstjórnargrein
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.