Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 5

Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 5
Litli-Bergþór 5 Örfá dæmi um hvað hægt er að gera Kaupa minna, það einfaldar lífið. Við þurfum í raun ótrúlega lítið til að lifa vel. Borða sem næst náttúrunni, helst það sem við framleiðum sjálf, eða er framleitt í heimabyggð, sem við vitum hvernig er framleitt. Keyra sem styst eftir vörum. Forðast allar vörur, sem innihalda mikið af aukaefnum eins og mikið unnar matvörur/snyrtivörur. - Við hér í Tungunum getum t.d. þakkað fyrir Bjarnabúð, sem stendur sig vel í að bjóða upp á kjöt og grænmeti/ávexti úr nágrenninu. Forðast notkun eiturefna í ræktun, - klippa njólann, reita arfa í stað þess að eitra! Lífrænar varnir.- Nota allan lífrænan úrgang sem áburð. Skít, seyru, lífrænan massa plantna og dýra, fiskúrgang á sjó og landi. Alls ekki henda þessarri auðlind á hauga eða í haf. Til þess að hægt sé að nýta slíkan áburð heildrænt í stað tilbúins áburðar, þarf að vinna hann og auðvelda notkun hans. Þetta er verkefni fyrir frumkvöðla náinnar framtíðar - og stjórnvöld!- Forðast matarsóun, ekki kaupa meira en það sem nýtist og ef verður afgangur, nota leifarnar sjálfur, eða fyrir hundinn/köttinn. Lífrænn úrgangur fer í jarðgerðarholu/moltugerð. Versla frekar við þær búðir, sem selja nothæfa vöru á niðursettu verði, þegar farið er að sjá á henni, frekar en henda henni. Hugsa um hve langt þarf að flytja mat og aðrar neysluvörur og um kolefnisspor flutningsins. Hugsa um hvaðan maturinn kemur. Forðast stóriðju-framleiddan mat, hann þarfnast því miður oft aðstoðar eiturefna, hormóna eða sýklalyfja. Feitur fiskur ofarlega í fæðukeðjunni inniheldur í seinni tíð þungmálma vegna mengunar, og er ekki hollur í miklu magni.Ávextir sem framleiddir er í fjarlægum heimsálfum komast ekki til okkar óskemmdir nema vera eitraðir og rotvarðir eða vaxaðir. Annars héldust þeir ekki gljáandi og fallegir í gegnum flutning, lagerhald og bið í stórmarkaði. Þeir eru tíndir óþroskaðir af trjánum í öðrum heimsálfum, þroskast á leið á markað og þess vegna bragðlausir og súrir þó fallegir séu. Það þekkja þeir sem smakkað hafa nýtínda suðræna ávexti þar sem þeir vaxa náttúrulega. - Fyrir utan kolefnissporið af flutningnum.Stóriðju í ræktun ávaxta fylgir líka matarsóun. Allir ávextirnir þurfa að líta eins út, Þeim ávöxtum sem ekki falla í staðalform er oftast hent á framleiðslustað, hinum þegar fer að sjá á þeim í búðum/stórverslunum – eða í ísskápnum heima. Sama með grænmeti. – Ótrúleg matarsóun. Ég set því spurningarmerki við kröfur um úrval og mikla ávaxtaneyslu á Íslandi/norðlægum slóðum. Nýtum árstíðarbundna framleiðslu þegar hún er fersk og helst það sem við framleiðum hér heima eða í nágrannaríkjum. Nýta gömlu fötin, gömlu muflurnar, - ekki kaupa nýtt fyrr en það gamla eru ónýtt. Jafnvel gera við! Nota föt úr náttúrulegum efnum, t.d. ull, eða bómull sem framleidd er á ábyrgan hátt. – Það er í lagi að borga hærra verð fyrir vöru sem endist og/eða er framleidd sem næst heimabyggð á ábyrgan hátt. Öll viljum við jú fá laun fyrir vinnu okkar. Og það kostar. Matur og föt geta ekki verið ódýr ef þau eru framleidd þar sem sanngjörn laun eru greidd fyrir vinnuna. Sniðganga einnota plast. Ég er algjörlega hætt að nota plastfilmu og plastpoka utan um eða yfir mat í ísskápnum. Set matinn í gler/leirskálar (helst) eða fjölnota plastskálar og disk yfir. Geymist betur þannig! - Viðurkenni þó að ég nota enn frystipoka utan um matvöru í frysti, það þarf að laga það. - Samt er með ólíkindum hve mikið plast kemur í plasttunnuna utan af matvörum. Forðast allan „geymslumat“ með mörgum aukaefnum og unninn mat. Fækka bílum á heimilinu, keyra minna, fækka flugferðum, fara heldur í lengri ferðir og dvelja lengur á sama stað, skipuleggja og samnýta ferðir. (Það var hægt í gamla daga, viðurkenni að það gengur illa á okkar heimili í dag!). Nota umhverfisvænni orkugjafa á bílana (allavega í framtíðinni, við næstu bílaskipti!). Einfalda lífið. Þetta eru bara örfáar hugmyndir. Ætli það sé ekki verkefni okkar allra að hugsa um þessa hluti og finna okkar eigin leiðir til að varðveita jörðina okkar, nýta hana án þess að spilla henni. Gleðilegt sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.