Litli Bergþór - 01.06.2022, Page 12

Litli Bergþór - 01.06.2022, Page 12
12 Litli-Bergþór Félag eldri borgara í Biskupstungum hélt upp á 30 ára afmæli félagsins í Aratungu 7. maí síðastliðinn. Brynja okkar Eyþórsdóttir sá um matinn af sinni alkunnu snilld og stórsöngvarinn og grínistinn Stefán Helgi Stefánsson sá um að skemmta okkur ógleymanlega. Var vel mætt og fóru allir saddir og glaðir heim. Stofnfundur félagsins var 11. maí 1992 og voru stofnfélagar 25 talsins. Af stofnfélögum er einn ennþá virkur í félaginu, en það er Sigurður Erlendsson á Vatnsleysu. Fyrsti formaðurinn var Jónína Jónsdótt- ir, Lindarbrekku. Sigurður Þorsteinsson, Heiði, tók við af henni og gegndi því embætti í 17 ár. Fríður Pétursdóttir tók við af honum, síðan Guðni Lýðsson og núna er Elín Siggeirsdóttir formaður. Núverandi stjórn skipa Elín Siggeirsdóttir formaður, Geirþrúður Sighvatsdóttir, gjaldkeri, Bjarni Kristinsson ritari, Ólafur Þór Jónasson og Gunnar Sverrisson varamenn. Allt frá stofnun hefur félagsstarfið verið öflugt og gefandi. Að jafnaði hittast um 18 manns í Bergholti vikulega frá lokum september og fram í maí. Undanfarin 3 ár hefur kórónaveiran þó sett strik í reikninginn, hennar vegna urðu samverustundir okkar færri en ella 2019, 2020 og 2021. Reglulegar samverustundir byrjuðu loks aftur síðastliðið haust og héldust fram að jólum þegar Covid-19 fór aftur á kreik. En frá og með febrúar síðastliðnum höfum við hist reglulega á hverjum fimmtudegi. Eitt er það allavega sem Covid-19 hefur kennt okkur en það er hve mikilvægt það er að hitta fólk og eiga samskipti hvert við annað. Það kom svo greinilega í ljós þegar við fórum að hittast aftur hversu mjög við söknuðum þessara samverustunda. Félagsmönnum hefur verið boðið upp á eitt og annað áhugavert nú í vor og má þar t.d. nefna að Heilsueflandi samfélag og Heilsugæslan í Laugarási héldu kynningu á þjónustu við aldraða og kaffisamsæti fyrir eldri borgara úr umdæmi Laugaráslæknishéraðs í Skálholti í vor. Þá héldu nemendur 10. bekkjar grunnskólans í Reykholti skemmtilega kynningu á þeim 15 Á myndinni má sjá þá Gunnar á Tjörn og Óla Jónasar æfa Elvistakta með Stefáni Helga Stefánssyni á 30 ára afmælishátíð FEBB. Örn Erlendsson tekur upp dansinn. FEBB - Félag eldri borgara í Biskupstungum Erna Kjartansdóttir, Guðni Lýðsson, Ólafur Jónasson, Matthildur Róbertsdóttir, Sigríður J. Sigurfinnsdóttir og Elín Siggeirsdóttir formaður hlusta á Knút í Friðheimum segja frá starfseminni þar.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.