Litli Bergþór - 01.06.2022, Síða 18

Litli Bergþór - 01.06.2022, Síða 18
og rist niður í kverk í einu handtaki. Þá deyr hesturinn eins og skotinn, svo ör er blóðrás hans. Reiðtygin skildi Jón eftir hátt á bakka og fékk sá nafnið Tygjabakki. Það örnefni mun nú týnt. Hönd í bláum vettlingi með fangamarki Jóns á þumlinum fannst ári eða árum síðar við Blöndu. Hana fann grasakona frá Grófargili í Skagafirði. Guðmundur frá Brandsstöðum telur það hafa verið á fjalli milli Ströngukvíslar og Þúfnavatnslækjar. Þar fer Blanda hæst með vorísana og þar eru grasalönd við ána. Með því þótti sannað að Jón hefði farist í vök í Beljandi eða Blöndu. Líkið hefur borist eftir ánni undir ísnum, frosið þar fast á endanum. Og við ísabrot að vori eru ekki takmörk á því, hvernig á getur bútað mannslík niður. Hundur Jóns kom niður að Rugludal en sá bær var austan við Blöndu innst í byggð. Á jólaföstu komu svo níu kindur úr rekstrinum niður að Stafni í Svartárdal – átta ær og einn hrútur. Hvernig á því gat staðið að þessar kindur skyldu vera á þessum slóðum á þessum tíma, hefur orðið mörgum umhugsunarefni. Á jólaföstu fengu Reynistaðarhjón nágranna sinn, Jón í Stóru-Gröf, þá sjötugan, til að fara suður og spyrjast fyrir. Með honum fór átján ára vinnumaður á Reynistað. Þeir riðu suður í Tungur á fjórum dögum. Voru þó ekki að flýta sér heim aftur. Fóru ekki fyrr en viku af þorra – höfðu beðið af sér hláku og höfðu rifahjarn norður. Riðu þá leið á tveimur sólarhringum. En norðarlega á Grúfufellsmelum þar sem nú heitir Dúfunefsskeið fundu þeir tuttugu kindur úr rekstri Reynistaðarmanna á hagleysu. Þó var féð svo vel á sig komið að þeir ráku það undan sér 40 kílómetra leið að Aðalmannsvötnum í drögum Svartárdals. Þangað var það síðan sótt. Guðmundur frá Brandsstöðum telur að þetta fé gæti hafa haft haga í Biskupstungum við Seyðisá fram yfir jól, þótt lokast hafi fyrir hann eftir hlákuna sem Grafar-Jón beið af sér syðra. Í hagleysu hafi það lagt af stað heim, það er í suðurátt. En sama gildir um þetta fé og það sem kom að Stafni. Það hefur ekki leitað sjálfrátt norður á bóginn um langvegu í hagleysu eftir að hafa losnað úr fönn við Beinhól. Allir sem farið hafa með fjárrekstur vita hve mikill munur getur verið á seinfæru fé og því léttrækasta. Því er freistandi að skipta hópnum upp og nota hraðann á því léttfæra til að létta á rekstrinum. Og í þessu tilviki til að koma boðum heim og sækja mannhjálp. Að skipta hópnum kallar Guðmundur frá Brandsstöðum ævafornt rekstrarmannaráð. Jón Austmann hefur því verið kominn í Blöndutökin, einn á ferð með hund og hest og tuttugu og níu léttfæra Skaftfellinga. Meðan hinir biðu við hólinn sem síðar fékk nafn af beinum. En tuttugu og níu Skaftfellingar áttu eftir að standa af sér öll veður og berja klakann – gætu hafa verið eina fullorðna féð í rekstrinum eins og áður hefur verið getið til. En ef til vill hefur Blanda þó skilað fleiru en hendinni. Sumarið 2010 fannst bein úr höfuðkúpu manns á svipuðum slóðum og höndin í vettlingnum – er nú geymt í minjasafni Skagfirðinga. Verið gæti því að höfuð Jóns Austmanns hafi líka borist upp á bakkann og fúnað þar í sverði í 230 ár. 4 Þegar fyrstu lestir úr Skagafirði fóru suður um vorið fundu menn tjaldið – litu inn í það og sáu lík undir ábreiðum – sáu þó alls ekki fyrir víst hvað þau voru mörg. Eftir það gerðu Reynistaðarmenn leiðangur suður á fjöll með fimm líkkistur en fundu aldrei í tjaldinu nema tvö lík – þeirra Sigurðar á Daufá og Guðmundar Daðasonar. Harmur Reynistaðarfólks fékk útrás í því að lögsækja þá sem fyrst fundu líkin og aðra þá sem vitað var að farið hefðu þarna um. Kærðu þá fyrir að taka lík bræðranna úr tjaldinu og fela annars staðar auk þess að stela þeim fjármunum sem gengið áttu að hafa af úr fjárkaupunum. Úr því urðu skelfileg sárindi milli fólks í Skagafirði en leiddi ekki til nokkurrar niðurstöðu – ég læt þann kafla málsins utan þessarar sögu. Bein tveggja manna fundust vissulega á blásnum mel innan við Kjalhraun fjarri alfaravegi sumarið 1841. Þau voru ekki sótt fyrr en fimm árum síðar enda þótti engum líklegt að þar væru bein bræðranna frá Reynistað. Ástæðan fyrir því að svo var þó látið heita, var fyrst og fremst hin almenna samúð í héraðinu vegna áratugalangrar sorgar Staðarfólks og óvissu – segir séra Ágúst Sigurðsson í umfjöllun sinni um Glaumbæ í bókinni Forn frægðarsetur. Öruggt tel ég að þau bein komi hvergi Reynistaðarmönnum við. Líklegast er að hvorugur þeirra bræðra hafi komist í áfanga undir Beinhól, heldur hafi látist áður en þangað var komið. Margar hafa hættur verið á leið þangað til dæmis Jökulfallið sem gæti hafa runnið milli skara. Hvar svo sem þeir bræður hafa látist þá hefur verið gengið frá líkunum við þann besta búnað sem menn kunnu og gátu í té látið – og einkum búið svo um að ekki kæmist tófan í þau – ekki því að undra þótt þau hafi orðið torfundin síðar þegar enginn gat til þeirra vísað. Öldin tuttugasta og fyrsta er orðin vön óleystum málum og hún mun sætta sig við það að bein þeirra Bjarna og Einars séu enn ófundin og muni varla finnast úr þessu. 18 Litli-Bergþór

x

Litli Bergþór

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.