Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 45

Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 45
Litli-Bergþór 45 Smalamennskur á Biskupstungnaafrétti hafa í meginatriðum verið svipaðar frá ári til árs síðan farið var að gera fjallskil þangað í lok 19. aldar. Vikuferð á hestum, tilgangurinn að sjálfsögðu sá að smala sauðfé til byggða úr sumarhögum. En einnig tilhlökkunarefni bænda og annarra sem til ferðar veljast, að sjá sauðféð skila sér vænt af fjalli og eyða vikutíma í öræfakyrrðinni, fjarri bústriti og heimilisbardúsi, á góðum hestum í góðra vina hópi. Taka tappa úr glasi, gleðjast, syngja og segja sögur í áfangastað, af svaðilförum og eltingaleik við sauðþráar kindur , eftir vel heppnaðan leitardag. Eina „frí“ bænda í þá daga. Vissulega hafa fjallferðir tekið breytingum í gegnum tíðina, sérstaklega hvað varðar allan aðbúnað fjallmanna. Verður það rakið hér á eftir ásamt smá söguskýringum varðandi afréttinn. Til að varðveita heimildir hef ég einnig tekið saman yfirlit yfir það hverjir hafa verið fjallkóngar á Biskupstungnaafrétti síðustu öld (eftir því sem heimildir leyfa), hvenær byrjað var að flytja trúss á bíl og vera með mötuneyti fyrir fjallmenn. Vona ég að einhverjir hafi gaman af þessari samantekt og séu nokkurs vísari á eftir. Um fjallferðir Tungnamanna frá byrjun tuttugustu aldar Í Litla-Bergþóri hafa birts margar greinar um afréttinn gegnum tíðina og eru þær helstu taldar upp í heimildalista neðst í greininni. Fjallferðir fyrir 1937 Einar J. Helgason í Holtakotum gerði, árið 1946, góða grein fyrir smalamennskum á Biskupstungnaafrétti á fyrri hluta síðustu aldar, í ritinu Göngur og réttir, 2. bindi bls 195-250, sem Bragi Sigurjónsson tók saman. (1) Birtast hér nokkur atriði úr þessari frásögn og annað endursagt. Um tilhögun fjallferða eftir 1936 er einnig vitnað í Sunnlenskar byggðir 1. bindi 1980 (2) og fjölda viðmælenda (20). Einar segir m.a.: að „allt fram um 1880 notuðu Biskupstungnamenn afréttinn norðan Hvítár aðeins fyrir hross og etv að einhverju leyti fyrir naut“... „Sauðfé var ekki rekið inn yfir Hvítá til sumardvalar fyrr en eftir 1880. Af því leiddi að fram til 1880 var það eingöngu fé Húnvetninga sem gekk á þessum afrétti öllum suður að Hvítá, auk þess Hreppafjár sem slæddist vestur yfir Jökulkvíslina. Þá voru líka Húnvetningar einir um að smala afréttinn, allt suður að Hvítá, og Hreppamenn komu til móts við þá í Gránunesi og drógu þar úr sínar kindur. En eignarhald Biskupstungna- hrepps á afréttinum var skjalfest: „fjórar kirkjur í Biskupstungna- hreppi, þ.e. Haukadalskirkja, Torfa- staðakirkja, Skálholtskirkja og Bræðratungukirkja áttu þennan afrétt, en með leyfi Kirkjustjórnarráðsins frá 23. Sept. 1850 (kaupbréfið dags. 25. apríl 1851), seldu kirkjurnar Biskupstungnahreppi afréttinn fyrir 80 rd. Er afsalsbréfið útgefið 26. apríl 1857.“ Tungnamenn vildu því fara að nýta þessa eign sína. Húnvetningar urðu eðlilega í fyrstu ósáttir við það þegar Tungnamenn byrjuðu að reka fé sitt á afréttinn. En eftir að sættir tókust „var tekin upp samvinna um smölun afréttarins, eftir því sem hagkvæmast var fyrir báða aðila“. Meðan fráfærur voru enn stundaðar voru það aðallega fráfærulömb sem rekin voru á afréttinn. Í Sunnlenskum byggðum I er haft eftir Ögmundi Á Biskupstungnaafrétti. Séð til til Hvítárvatns og Langjökuls af Tjarnheiði. ►
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.