Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 47

Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 47
Litli-Bergþór 47 núverandi brúarstæði. Tveir bátar voru notaðir til að tína upp fé sem gafst upp á sundinu. Er til mikil og góð lýsing á því hvernig farið var að við þetta verk í grein Einars í Göngum og réttum. Greinilega ansi erfitt verk og oft mikið volk og vosbúð, bæði á smölum og fénaði. (1), (8), (21). Eftir að brúin kom 1935 urðu smalamennskur, og ekki síður rekstur lambfjár á fjall, mun auðveldari. Þegar ný brú, sem þoldi þyngri farartæki, var byggð yfir Hvítá á þessum stað 1973 gátu bændur, sem beita vildu fé sínu innan Hvítár, ekið lambfénu þangað á vögnum. Aðstæður til fjárflutninga bötnuðu svo enn eftir að Sandá var brúuð árið 1979. Engu að síður var fé rekið á fjall, allt inn á Svartártorfur, langt fram eftir 20. öldinni og lagðist fjallrekstur sennilega ekki alfarið af fyrr en við fjárskiptin 2004-2006. Eftir það hefur fénu öllu verið ekið á fjall. (20). Áður en brúin kom á Tungfljót í landi Vatnsleysu árið 1929, var fjallsafnið rekið vestur yfir Ásbrandsá á svonefndu Lambavaði, vestur á Haukadalsheiði, til þess að ekki þyrfti að sundleggja það í Tungufljóti. Þaðan var það rekið niður hjá Haukadal, neðan við Múla og í gömlu réttirnar við Tungufljót neðan við Holtakot. Eftir að brúin kom, hefur safnið verið rekið suður Eystri-Tunguna og yfir Tungufljótsbrúna í réttirnar, í þær gömlu til ársins 1955 og þær nýju eftir það. Arnór Karlsson segir frá því í Sunnlenskar byggðir, að Seyðisársafnið hafi verið rekið á Réttatorfu austan við Tungufljót á móti gömlu réttunum. Eystritungu féð var þar dregið úr og hitt féð svo rekið yfir Fljótið ofan við réttirnar og réttað með fjallsafninu. Gat það verið milli 700-1400 fjár sem kom norðan frá Seyðisá. Fjallferðir eftir 1937 Eftir að girt var vegna sauðfjárvarna á Kili hafa Biskupstungnamenn leitað allan afréttinn, þ.e. frá girðingunni norðan Hveravalla og milli jökla. Að vestanverðu liggja mörk afréttarins um Langjökul, Farið og Ásbrandsá til byggða, en að austan frá Hofsjökli, austan Blágnípu, um Jökulkvíslina (Jökulfall) þar til hún rennur í Hvítá. Þaðan liggja mörkin um Hvítá til byggða. Fyrsta leit á Biskupstungnaafrétti (fyrsta safn) hefur a.m.k. frá upphafi 20. aldar verið 7 dagar og er svo enn. Farið var áður á miðvikudegi og réttað á miðvikudegi vikuna eftir. Síðan árið 1996 hefur verið farið á laugardegi og réttað á laugardegi viku síðar. Fjallmenn (26-28 menn) fara ríðandi í leitir með 2-3 góða hesta til reiðar, - ekki verra ef einhver á góðan smalahund. Margt hefur breyst varðandi fjallferðirnar, sérstaklega hvað varðar aðbúnað, en þær eru enn sem fyrr tilhlökkunarefni þeirra, sem í þær fara. Hver slær hendi á móti 7 daga hestaferð? Tólf tímar í hnakknum á hverjum degi, vel nestaður, allskonar ævintýri og þrekraunir, heitur matur og góður félagsskapur þegar komið er í skála? – Fjallferðir hafa því alltaf verið eftirsóttar og auðvelt að manna þær, enda lítið um að menn þurfi að hlaupa í fjöll, nema þá helst í Þjófadalafjöllin austan Langjökuls og Bláfell. Utanumhald hefur jafnan verið gott í fjallferðum Tungnamanna. Matseljur hafa graut og nesti til kl. 6 og fjallmenn eiga að vera tilbúnir, komnir í hnakkinn kl. 7 og skiptir þá ekki máli þótt söngur og gleði hafi verið fram eftir nóttu. Hver maður fer möglunarlaust í þá leit sem honum er skipað í af fjallkóngi og þeir sem ekki eru mættir á tilsettum tíma verða bara eftir! Og það gera menn ekki nema einu sinni. Skipulag leita hefur örlítið breyst í samræmi við betri vegasamgöngur og gistimöguleika. Í stórum dráttum eru leitir þó svipaðar og áður fyrr, nema að nú er farið í Hveravallaleit og Austurkróksleit í stað Seyðisárleitar og Gránunesleitar. Frá 2012 hefur fyrsti náttstaður fjallmanna verið í Svartárbotnum (Gíslaskála), en var áður í Árbúðum og þar áður í Hvítárnesi til 1992. Fyrsti dagur á fjalli, fjallreiðardagurinn, fer í að koma sér og hestunum í fyrsta náttstað og er ein dagleið á hestum frá efstu bæjum í náttstaðina í Hvítárnesi og Árbúðum. Áður fóru allir fjallmenn ríðandi til fjalls, Fé rekið meðfram Svartá í stefnu á Bláfell. ►
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.