Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 52

Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 52
52 Litli-Bergþór Bjarni á Bóli var fyrirliði í eftirsafni (9 menn) og Ingimar á Efri-Reykjum fyrirliði í eftirleit (4 menn). Því miður hafa ekki fundist nema örfáir fjallskilaseðlar frá árunum fyrir 1965, svo nokkuð vantar inn í yfirlitið yfir kónga og fyrirliða frá fyrri hluta aldarinnar. En margir sátu lengi í embættum. Yfirlit yfir fjallkónga í fyrsta safni (1. leit) á Biskupstungnaafrétti frá 1916: Samkvæmt samantekt Guðrúnar S. Magnúsdóttur og öðrum heimildum (19) hafa þessir m.a. verið fjallkóngar í fyrstu leit frá árinu 1916: Einar Jónsson Litla-Fljóti var fjallkóngur í Gránunes 1916, 1917 (19) (bjó á L-Fljóti 1899-1919) Eyþór Guðlaugsson Fellskoti fjallkóngur í Gránunes 1928, 1929 (bjó í Fellskoti 1928-1930) Einar Jörundur Helgason Holtakotum 1930-1963 (skv. Göngur og réttir II bls 196). Guðni Lýðsson Gýgjarhóli 1964-1974 Sveinn Skúlason í Bræðratungu 1975-1985 Guðmundur Sigurðsson Vatnsleysu 1986-1996 Kjartan Sveinsson Bræðratungu 1997-2004 Loftur Jónasson Myrkholti 2005-2014 Guðrún S. Magnúsdóttir Bræðratungu 2015- Fyrirliðar í Eftirsafni (2. leit) fyrir 1991: Bjarni Guðmundsson á Bóli (bjó á Bóli 1901-1952), var lengi fyrirliði, m.a. 1928 (1) og þar til Þórður tók við 1944(20). Þórður Kárason Litla-Fljóti 1944-1964 („Kóngurinn á Kili“) (3) Guðjón Gunnarsson Tjörn 1965-1990 (skv. fjallskilaseðlum)(19) Fyrirliðar í Eftirleit (3.leit) fyrir 1991: Oft fóru sömu menn í leitir árum saman. Átti það ekki síst við um eftirleitarmenn. Samkvæmt Jóni Karlssyni í Gýgjarhólskoti (sem var fæddur árið 1929, dáinn 2016), fóru sömu fjórir mennirnir áratugum saman í eftirleit innan Hvítár og skiptust þeir á að vera fyrirliðar. Frá 1958 voru það: Steinar Tómasson Helludal fyrirliði til 1962, Ingvar Ingvarsson Hvítárbakka 1963-1979, (árið 1963 var hans 21. eftirleitarferð, svo hann hefur farið allavega frá 1942) (13), (19). Jón Karlsson Gýgjarhólskoti, fyrirliði 1980 til 1991 og fór svo áfram, eftir breytingar á leitum, sem fyrirliði eftirsafns innan Hvítár til 1999. (Fór síðast 2004 sem trúss og Ranka kona hans sem eldabuska). Fjórði maður var lengst af Gísli Einarsson í Kjarnholtum og sá hann um eldamennsku, en var með hestana á kerru og var einnig í leitum. Síðar fór Eyja, (Þórey Jónasdóttir) á Geysi með honum og hjálpaði til við eldamennsku og leitir (17). Í um áratug fóru fimm menn í eftirleit, annars fjórir. Loftur Jónasson á Kjóastöðum fór í eftirleit frá 17 ára aldri 1970 til 2016. Aðrir fóru sjaldnar. Eftir að leitum var breytt árið 1991 hafa þessir verið fyrirliðar í eftirsafni og eftirleit: Fyrirliðar í eftirleit innan Hvítár frá 1991: Jón Karlsson 1991-1999 Loftur Jónasson 2000 - 2016 María Þórunn Jónsdóttir 2017- Fyrirliðar í eftirsafni á framafrétt frá 1991: Magnús Jónasson Kjóastöðum 1991-2001 og 2003 Arnór Karlsson Arnarholti 2002 (Arnór flutti í Reykholt 2003) Hjalti Ragnarsson Ásakoti 2004- Blaðamaður Vísis hitti Þórð Kárason á Litla-Fljóti (f. 1889 d. 1968) í eftirsafni á Kili haustið 1964. Þórður þá 75 ára fyrirliði, „Konungurinn á Kili“, búinn að fara á fjall í 60 ár frá 14 ára aldri, nær alltaf inn á Kjöl og verið fyrirliði í eftirsafni í 20 ár. Í greininni segist hann hafa „legið fyrir dauðanum um vorið“, en „fjallaloftið læknar öll mein“ og nú ætlaði hann að verða allra karla elstur! Lýsir hann síðan fjallferðum bæði fyrr og síðar og ýmsum svaðilförum og gleðistundum í faðmi Tungnaréttir 2012, Ægir Freyr á Miðhúsum t.v. og Bláfell í baksýn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.