Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 60

Litli Bergþór - 01.06.2022, Blaðsíða 60
60 Litli-Bergþór Í tengslum við vinnu mína við að taka saman upplýsingar um það hvernig síminn hélt innreið sína í Laugarás og breytti til muna aðstæðum héraðslæknisins og sjúklinga, ákvað ég að hafa samband við þau Garðar Hannesson og Steinunni Þórarinsdóttur (Stennu). Þau störfuðu í Aratungu frá því símstöð var flutt þangað haustið 1961 og allt til ársins 1975, þegar farið var að hilla undir sjálfvirkt símkerfi. Garðar var húsvörður og símstöðvarstjóri. Þau hjón sinntu þessum störfum í sameiningu, þó svo Garðar hafi formlega gegnt þessum hlutverkum. „Þannig var þetta bara þá“, segir Stenna. Hvað um það, ég var boðinn velkominn og ég skellti mér í heimsókn í byrjun mars. Leiðin að Aratungu Fyrst er rétt að gera örlitla grein fyrir viðmælendum mínum, en þau hafa búið í Hveragerði frá því að þau fluttu úr Tungunum. Steinunn, eða Stenna (1940) er elst sex barna hjónanna Ingibjargar Guðmundsdóttur (1916-2014) og Þórarins Þorfinnssonar (1911-1984) á Spóastöðum. Garðar (1935) er yngstur níu barna þeirra Jóhönnu Bernharðsdóttur (1896-1970) og Hannesar Andréssonar (1892-1972) á Eyrarbakka. Það má kannski segja að örlög Garðars og Stennu hafi byrjað að spinna vef sinn árið 1946, þegar Hannes, faðir Garðars hóf störf hjá Rafveitum ríkisins. Það leiddi síðan til þess að Garðar fékk þar einnig starf í fyllingu tímans. Á sjötta áratugnum var unnið að því að leggja rafmagn í Biskupstungur, en þá var Hannes verkstjóri og sonurinn Garðar einn línumannanna. Hópurinn var í fæði í Skálholti, þar sem Stenna var ráðskona í mötuneyti fyrir þá sem unnu við byggingu dómkirkjunnar. „Það voru ekki bara Daði og Ragnheiður sem kynntust í Skálholti“, segir Garðar. „Steinunn hélt bara að þetta væri einhver karl frá Eyrarbakka og við litum ekki hvort á annað, einusinni. Svo benti Maja (María Eiríksdóttir í Skálholti) henni á að þetta væri nú sonur verkstjórans. „Það getur ekki verið, hann kallar hann alltaf Hannes!“, varð Steinunni á orði. „Taktu bara eftir því,“ sagði Maja þá, „alveg sama göngulagið!“ Það hefði verið útilokað að einn í svona hóp hefði kallað „pabbi, pabbi“ svo ég kallaði hann bara Hannes eins og hinir.“ Engu líkt Í heimsókn hjá Steinunni Þórarinsdóttur og Garðari Hannessyni Fyrri hluti Garðar og Stenna á heimili sínu í Hveragerði í mars 2022. Mynd pms. Myndin var tekin á brún Vaðlaheiðar 1953, Akureyri í baksýn. Hannes Hannesson bróðir Garðars og Guðjón Pálsson. Þarna var verið að leggja línu frá Laxárvirkjun til Akureyrar. Rafveitumenn kölluðu símamenn símatitti, enda staurarnir miklu lægri. Mynd frá Garðari og Stennu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.