Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 10

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 10
VAKA 1. argangur . í. ársfjórðungur Vér þurfum ekki að fara í grafgötur um, hvern enda harðvítug stéttabarátta og hóflausar deilur um völd og metorð í þjóðfélaginu muni fá. Og það orkar heldur ekki tvímœlis um afleiðingar þess, þegar farið er að sœkja fyrirskipanir til erlendra valdhafa um það, hvernig leysa skuli innbyrðis vandamál íslendinga. Allar Sturlunga- aldir enda á einn og sama veg: Ríkið líður undir lok, þegnarnir glata frelsi sínu og menning þeirra er drepin í dróma. Á yfirstandandi tíma hvilir ískyggilega dökkur skuggi nýrrar Sturlungaaldar yfir þjóð vorri. Óbilgirni landsmálabaráttunnar, árekstrar stéttanna og starfsemi hinna föðurlandslausu byltinga- manna á sitt ófagra fordœmi i sögu fyrri Sturlungaaldar. En sagan — reynsla þjóðarinnar og samvizka — hefir kveðið upp þungan áfell- isdóm um þetta. Þess vegna hljótum vér að œtla í lengstu lög, að allur þorri þegnanna taki höndum saman til verndar sínum helgustu rétt- indum, frelsinu. Að fólkið sjálft skipi sér í sterka fylkingu, sem af þjóðernislegum ástœðum leggi innbyrðisskoðanamun á hilluna, en vinni einhuga að því, að íslendingar megi um öll ókomin ár verða stjórnarfarslega, fjárhagslega og menningarlega sjálfstœð þjóð. VÖKU, hinu nýja tímariti um þjóðfélags- og menningarmál, er nú kemur fyrir almenningssjónir í fyrsta sinn, er mörkuð megin- stefna í samrœmi við þcer staðreyndir, sem vakin hefir verið á athygli hér að framan. VAKA telur persónufrelsi og þingræði œskilegustu hyrningarsteina þjóðskipulagsins, enda heilbrigðs menningarlifs að- eins að vœnta í þjóðfélagi, sem reist er á þeim grunni. — Að vísu er þess eigi að dyljast, að misnota má frelsi lýðrœðisins, og verður því atriði vœntanlega gerð nokkur skil hér i ritinu síðar. — Þar eð VAKA vill vernda núverandi þjóðskipulag, tekur hún að sjálfsögðu afstöðu gegn hinum erlendu ofbeldisflokkum, og vill af fremsta megni vinna gegn hlífðarlausri flokka- og stéttabaráttu innan lands. Þó œtlar VAKA sér víðtœkara hlutverk en halda uppi vörn- um fyrir rikjandi þjóðskipulag og frœðslu um gildi lýðrœðisins fram- yfir einrœðið. Þjóðfélags- og menningarmál yfirleitt mun hún láta til sín taka, enda hefir fjöldi þjóðkunnra manna, sem með forystu fara á ýmsum sviðum, heitið henni aðstoð sinni. í þessum fáu inngangsorðum er ekki hœgt að gera ítarlega grein fyrir stefnu VÖKU og viðhorfi til ýmissa vandamála líðandi stundar á vettvangi félagsmálanna. Til skýringar á höfuðstefnu ritsins í því 4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál
https://timarit.is/publication/1746

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.