Vaka : tímarit um þjóðfélags- og menningarmál - 01.03.1938, Page 13
í. árgangur . í. ársfjórðungur YAIÍA
Ásgeir Ásgeirsson:
Einræði og- lýðræði
Mörgum vex nú í augum upp-
gangur einræðisríkjanna. Það
heyrist ekki ósjaldan, að dagar
lýðræðisins séu taldir. Og ekki
verður því neitað, að mikil breyt-
ing er á orðin í heiminum. Fram
að ófriðnum mikla virtist þróunin
ganga í áttina til lýðræðis eftir
brezkri fyrirmynd. Einræðisríkin
voru leifar hins gamla tíma. Þau
riðuðu af elli eins og Franz gamli
Jósef og höfðu engan boðskap að
flytja. En nú hefir einræðið yngzt
upp og biður engrar fyrirgefning-
ar á sér. Það heilsar upp á heim-
inn, eins og það eigi hann, með
nazistakveðju. Það þrammar á-
fram með alvæpni á rússneskum
rosabullum. Kjálkarnir eru miklir
eins og á Mussolini, en augun eru
skásett eins og í Japana, því að
innrætið er austrænt.
En þegar betur er að gáð, þá
hefir lýðræðið haldið velli alstað-
ar þar, sem það hafði náð að festa
rætur. Japan hefir aldrei verið
lýðveldi. Ég kalla hér lýðveldi öll
lýðræðisríki. Það skiptir minnstu
hvort þau hafa konung eða for-
seta. Slíkt er bara form en ekki
eðlismunur. Og eins kalla ég ein-
veldi þau ríki, sem hafa einráða
forustu, hvort sem þar er um naz-
isma eða kommúnisma að ræða.
Lýðræðið var ekki ríkjandi á
Þýzkalandi fram að ófriðarlok-
um, en þá var stofnað þar lýðveldi
við hin verstu skilyrði. Lýðveldið
tók lit af ósigrinum og erlendri
kúgun og visnaði upp eins og
frækorn, sem fellur í grunnan
jarðveg. Ítalía hafði skamma
stund verið lýðveldi, og verður þó
helzt þar talað um, að einveldi
hafi sigrast á lýðveldinu.
Hin gömlu lýðræðisríki hafa öll
haldið velli, Norðurlönd, Holland
og Belgía, Frakkland, Bretland,
sambandsríki þess og Bandaríkin.
Þau hafa þolað ófrið og kreppur
án þess að þar yrði vopnuð bylt-
ing. Á hinum erfiðustu tímum
hafa atkvæði skorið úr, en ekki
hendur verið íátnar skipta. Það,
sem má læra af sögu síðustu ára-
tuga, er ekki það, að lýðveldin
7